Tveggja mánaða fangelsi fyrir að þykjast vera annar maður 13. mars 2008 18:14
Hæstiréttur dæmdi pólverjann Pawel Janas í tveggja mánaða fangelsi í dag fyrir að hafa í tvö ár villti á sér heimildir og þóst vera annar maður. Héraðsdómur Austurlands hafði áður dæmdt manninn í hálfs árs fangelsi en sú refsing var milduð. Janas var ákærður fyrir skjalafals og var ákæran í fimm liðum. Var honum gefið að sök að hafa framvísað vegabréfi manns að nafni Henryk Szelag og fengið þannig dvalarleyfi hér á landi. Þá var hann einnig sakaður um að hafa notað nafn mannsins við undirskrift á ráðningarsamningu hjá Loðnuvinnslunni og þegar hann sótti um ökuskírteini og fékk vinnuvélaskírteini. Lögregla hafði fengið ábendingar um að maðurinn væri ekki sá sem hann segðist vera. Við rannsókn málsins tók lögregla fingraför af honum og voru þau send til Póllands til rannsóknar. Voru þá fingraför hans samkennd fingraförum manns að nafni Pawels Janas sem eftirlýstur var í Póllandi. Þá bar faðir Janas kennsl á son sinn af mynd sem ríkislögreglustjóri hafði sent Interpol í Varsjá. Janas neitaði sök fyrir héraðsdómi og neitaði að svara því á hvaða skilríkjum hann hefði komist til landsins. Þá vildi hann ekki tjá sig frekar um sakarefnið og svaraði ekki spurningum ákæruvaldsins um efni ákærunnar. Dómurinn komst að því að Janas hefði gerst sekur um skjalafals með því að fá dvalarleyfi og ökuskírteini út á nafn Henryks. Hann var hins vegar sýknaður af því að falsað nafn Henryks undir ráðningarsamning við Loðnuvinnsluna og undir vottorð vegna vinnuvélaprófs. Var það vegna þess að engin vitni hefðu verið leidd fyrir dóminn til að staðfesta að Janas hefði ritað nafn Henryks undir ráðningarsamninginn eða undir vottorðið vegna vinnuvélaskírteinis. Pawl var því gert að sæta fangelsi í tvo mánuði.
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Sjá meira