Innlent

Tveggja mánaða fangelsi fyrir að þykjast vera annar maður

Hæstiréttur dæmdi pólverjann Pawel Janas í tveggja mánaða fangelsi í dag fyrir að hafa í tvö ár villti á sér heimildir og þóst vera annar maður. Héraðsdómur Austurlands hafði áður dæmdt manninn í hálfs árs fangelsi en sú refsing var milduð.

Janas var ákærður fyrir skjalafals og var ákæran í fimm liðum. Var honum gefið að sök að hafa framvísað vegabréfi manns að nafni Henryk Szelag og fengið þannig dvalarleyfi hér á landi. Þá var hann einnig sakaður um að hafa notað nafn mannsins við undirskrift á ráðningarsamningu hjá Loðnuvinnslunni og þegar hann sótti um ökuskírteini og fékk vinnuvélaskírteini.

Lögregla hafði fengið ábendingar um að maðurinn væri ekki sá sem hann segðist vera. Við rannsókn málsins tók lögregla fingraför af honum og voru þau send til Póllands til rannsóknar. Voru þá fingraför hans samkennd fingraförum manns að nafni Pawels Janas sem eftirlýstur var í Póllandi. Þá bar faðir Janas kennsl á son sinn af mynd sem ríkislögreglustjóri hafði sent Interpol í Varsjá.

Janas neitaði sök fyrir héraðsdómi og neitaði að svara því á hvaða skilríkjum hann hefði komist til landsins. Þá vildi hann ekki tjá sig frekar um sakarefnið og svaraði ekki spurningum ákæruvaldsins um efni ákærunnar.

Dómurinn komst að því að Janas hefði gerst sekur um skjalafals með því að fá dvalarleyfi og ökuskírteini út á nafn Henryks. Hann var hins vegar sýknaður af því að falsað nafn Henryks undir ráðningarsamning við Loðnuvinnsluna og undir vottorð vegna vinnuvélaprófs. Var það vegna þess að engin vitni hefðu verið leidd fyrir dóminn til að staðfesta að Janas hefði ritað nafn Henryks undir ráðningarsamninginn eða undir vottorðið vegna vinnuvélaskírteinis.

Pawl var því gert að sæta fangelsi í tvo mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×