Lífið

Þýskt eurodance á Broadway

Natalie Horder er söngkona Cascada.
Natalie Horder er söngkona Cascada.

Cascada kemur fram á Broadway í boði Flass 104,5 og mun ekkert vera til sparað til að gera kvöldið eins glæsilegt og mögulegt er. Auka hljóðkerfi og auka ljósakerfi verður á svæðinu. Upphitun verður í höndum Dj Sindra Bé Emm og Mercedez Club, sem munu koma fram á sínu fyrsta alvöru balli þetta kvöld. Síðan mun einn heitasti Dj landsins Frigore úr Plugg´d stíga á stokk þegar Cascada hefur lokið sér af.

Cascada er þýsk eurodance hljómsveit sem eru hvað þekktust fyrir lagið Everytime We Touch sem kom út á samnefndri plötu árið 2006(b.n.a.) og 2007(e.u.). "Hljómsveitin" Cascada er í raun bara ein söngkona sem heitir réttu nafni Natalie Horler en þeir DJ Manian og Yann Pfeiffer koma mikið að tónlistar gerðinni. Þeir tveir hafa líka unnið að verkefninu Tune Up! sem er annað þekkt eurodance nafn.

Cascada ætti að vera Íslendingum góðkunn enda hefur hún verið í stanslausri spilun á Flass 104,5 og Fm 957. En alls hafa 5 lög fengið umtalsverða spilun á fm 957 og 2 til viðbótar á Flass 104,5. Cascada er án efa einn allra stæðsti tónlistaratburður ársins hjá yngri kynslóðinni og munu margir bíða komu hennar spenntir.

Cascada hefur gefið út eina breiðskífu nú þegar, sem hlotið hefur margar viðurkenningar og selst gríðarlega vel. Platan Everytime We Touch innhélt lög eins og Miricle, How do you do, Woldn't it be good, Truly madly deeply, a never ending dream og titil lagið Everytime We Touch. Platan hefur selst í milljónum eintaka og titillagið every time we touch náði toppsæti vinsældalista útum allan heim.

Í desember kom út platan Perfect Day og er hún öllu fjölbreyttari en Every time we touch. Á þeirri plötu syngur Cascada m.a. nokkrar ballöður, eitt house lag er á plötunni og síðan er euro-trancið sem Cascada er orðin heimsþekkt fyrir.

Cascada - Broadway 19.03.08

Miðasalan í verslun skór.is

Miðaverð: 4.500






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.