Eins árs fangelsi fyrir hrottafengna árás og nauðgun 13. mars 2008 15:20
Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt karlmann í eins árs fangelsi, þar af níu mánuði skilorðsbundna, fyrir hrottafengna árás og nauðgun gagnvart unnustu sinni. Þá var hann dæmdur til að greiða henni rúmar sex hundruð þúsund krónur í miskabætur. Maðurinn var ákærður fyrir frelsissviptingu, líkamsárás og nauðgun í málinu. Samkvæmt ákæru fór hann inn í íbúð á Laugarvatni þar sem unnusta hans var og togaði hana út og inn í bifreið sína. Þaðan ók hann að Gjábakkavegi og dró hana út úr bílnum og sló hana í andlit og líkama. Þá setti hann hana aftur upp í bíl og ók að húsi á Laugarvatni þar sem hann dró hana á hárinu út úr bílnum og inn í íbúð þar sem hann braut gegn kynfrelsi hennar. Þá sló hann hana ítrekað í andlitið og líkama og hlaut konan ýmsa áverka við þessar aðfarir mannsins. Maðurinn játaði að hafa veist að konunni en neitaði að hafa dregið hana á hárinu út úr bílnum eins og í ákæru greinir. Þá neitaði hann einnig að hafa slegið hana ítrekað í líkama og andlit. Dómurinn komst hins vegar að því út frá gögnum málsins að maðurinn hefði orðið sekur um það. Maðurinn bar því við að hann hefði haldið að konan hefði verið honum ótrú en dómurinn segir að það komi honum ekki til refsilækkunar. Hins vegar var litið til þess að maðurinn játaði brot sín að mestu en einnig að árásin var hrottafengin og ófyrirleitin og að hluta framin inni á heimili konunnar þar sem fjórtán ára dóttir hennar var einnig stödd og varð vitni að fólskulegri árás á móður sína. „Þá verður að líta til þess að um brotasamsteypu er að ræða og að ofbeldi ákærða stóð yfir í umtalsverðan tíma og var til þess fallið að niðurlægja unnustu hans og svipta hana mannlegri reisn," segir dómurinn enn fremur.
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Sjá meira