RÚV ætlar með launamál Þórhalls og Sigrúnar fyrir dómstóla Jón Hákon Halldórsson skrifar 13. mars 2008 14:16 Páll Magnússon útvarpsstjóri og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, handhafi eina hlutabréfsins í RÚV.
Ríkisútvarpið neitar að láta Vísi í té upplýsingar um laun dagskrárstjóra Ríkissjónvarpsins og dagskrárstjóra útvarps, þrátt fyrir að úrskurðarnefnd um upplýsingamál hafi úrskurðað að Ríkisútvarpinu sé skylt að veita þessar upplýsingar. Í nóvember á síðasta ári óskaði Óskar Hrafn Þorvaldsson, ritstjóri Vísis, eftir upplýsingum um laun Þórhalls Gunnarssonar, ritstjóra Kastljóss og dagskrárstjóra Ríkissjónvarpsins, og Sigrúnar Stefánsdóttur, dagskrárstjóra Ríkisútvarpsins. Ríkisútvarpið neitaði að upplýsa um þetta og kærði Óskar því Ríkisútvarpið til úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Þann 11. mars síðastliðinn úrskurðaði nefndin svo að Ríkisútvarpið skyldi veita kæranda, Óskari Hrafni, aðgang að ráðningarsamningi fyrirtækisins við Þórhall Gunnarsson og Sigrúnu Stefánsdóttur. Bjarni Guðmundsson, aðstoðarmaður útvarpsstjóra, sagði í samtali við Vísi í morgun að Ríkisútvarpið hefði ákveðið að senda úrskurðarnefnd erindi þar sem þess verður óskað að réttaráhrifum úrskurðarins verði frestað, samkvæmt 18. grein upplýsingalaga. Þetta þýðir að Ríkisútvarpið mun bera úrskurð nefndarinnar undir dómstóla og óska eftir flýtimeðferð á málinu.
Mest lesið Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Innlent Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Erlent Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Innlent Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Erlent Braut rúðu eftir að hafa verið synjað um starf Innlent Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Innlent Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Erlent Gífurlegir hagsmunir í húfi ef tæknin kemst í rangar hendur Innlent Á brattann að sækja fyrir aðildarsinna Innlent Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Erlent Fleiri fréttir Fyrsta pallborð fyrir kosningarnar í maí: Mosfellsbær á sviðið Dönsk þyrla með franskri herflutningavél til Íslands Bandaríkjaforseti gangi fram líkt og götustrákur Á brattann að sækja fyrir aðildarsinna Gífurlegir hagsmunir í húfi ef tæknin kemst í rangar hendur Vísindi á vordögum: Af hverju er offita enn þá vandamál? Hættuleg framþróun gervigreindarinnar, vopnahlé og kosningapallborð Töluverð skautun í málefnum Ísraels og Palestínu Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Tveir fluttir á sjúkrahús eftir að eldur kviknaði í bílskúr Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Braut rúðu eftir að hafa verið synjað um starf Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Boða til mótmæla við bandaríska sendiráðið Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Gefur ekki mikið fyrir yfirlýsingar Trump um útrýmingu Íran Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Hegðun Trumps vonbrigði Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Nýstaðinn upp þegar bárujárnið fauk inn um svefnherbergisgluggann Rafmagnslaust var í hluta Seltjarnarness og Vesturbæjar Skipverjar og hafnarverkamenn boða verkfall Harma að íbúar hafi verið í hættu við Fannborg Hótun um útrýmingu, ný kosningaspá og óvenjulegt þrumuveður Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Krapaspýja lokar Vestfjarðavegi Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Sjá meira