Erlent

Fangaverðir átu eitraða köku frá föngum

Frá Danmörku.
Frá Danmörku.

Fjórir fangaverðir í fangelsinu í Nyborg í Danmörku liggja nú á sjúkrahúsi eftir að hafa borðað köku sem fangarnir bökuðu handa þeim.

Í ljós hefur komið að eitur var sett í kökuna. Fangar þeir sem hér um ræðir eru í sérstakri öryggisgæslu í fangelsinu enda tilheyra þeir samtökum á borð við Black Cobras og Den Internationale Klub sem þekkt eru fyrir fíkniefnasmygl og gróft obeldi.

Fangelsisstjórinn segir að eftir á að hyggja hafi ekki verið skynsamlegt af fangavörðunum að þiggja kökuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×