Erlent

Móðir faldi 15 kíló af kókaíni á börnum sínum

Tollvörðum á Heathrow-flugvelli í London brá í brún er þeir stoppuðu móður með tvö börn sín þar. Móðirin hafði límt 15 kíló af kókaíni á fætur barnanna sem eru 11 ára gömul stúlka og 13 ára gamall drengur.

Fjölskyldan var stoppuð við hefðbundið eftirlit en hún var að koma frá Mexíkó-borg. Talið er að verðmæti kókaínsins á Bretlandsmarkaði séu rúmlega 100 milljónir króna




Fleiri fréttir

Sjá meira


×