Slæmt að ekki sé tekið á móti öllum háskólanemum 28. desember 2008 12:05 Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Útlit er fyrir að ekki verði hægt að taka á móti öllum þeim nemendum sem hafa sótt um skólavist í háskólum landsins. Mjög slæm staða segir þingmaður í menntamálanefnd, sem vill að það verði skoðað hvort hægt sé að breyta kennsluháttum í einhverjum tilfellum svo taka megi á móti fleiri nemendum. Nær þrefalt fleiri hafa sótt um skólavist í Tækniskólanum nú en venja er, eða yfir 900 manns. Ekki eru fjárveitingar til fyrir öllum þessum fjölda og beiðni um aukafjárveitingu hefur ekki enn verið afgreidd. Baldur Gíslason skólameistari, segir í Fréttablaðinu í dag að óljóst sé hve mörgum þurfi að vísa frá, að óbreyttu hægt að taka við 500 nemendum. Þá segir Baldur að þegar hafi verið rætt við menntamálaráðuneytið um aukafjárveitingu en ekki hafi enn borist svar. Rektor Háskóla Íslands hefur einnig sagt að háskólinn geti ekki tekið á móti öllum þeim 1600 nemendum sem hafa sótt um skólavist á vormisseri. Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem á sæti í menntamálanefnd, segir þetta afar slæma stöðu. Hún segir dapurlegt að skorið sé niður menntamálum. Vissulega sé það slæmt ef ekki verður hægt að taka á móti þeim nemum sem vilja koma í skólanna. Þá segir Ragnheiður að ekki eigi að slá af kröfum um gæði náms en spurning sé hvort að skólarnir geti með einhverjum hætti hagrætt svo hægt verði að taka á móti sem flestum nemendum. Ragnheiður spyr hvort hægt sé að breyta kennsluháttu, hvort hægt sé að auka fjarnám og hvort skólar geti brugðist við með öðrum hætti.
Mest lesið Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Innlent Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Innlent Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Innlent Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Fleiri fréttir Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Sjá meira