Erlent

Enn ólga í Danmörku

Enn eru óeirðir í Danmörku í kjölfar þess að fjölmiðlar ákváðu að endurbirta skopmynd af Múhameð spámanni. Óróinn hefur breiðst út um landið átti lögregla átökum við ungmenni í Kaupmannahöfn, Árósum og á nokkrum stöðum á Norður Sjálandi.

Í bænum Bagsværd rétt utan við Kaupmannahöfn var eldur borinn að skólabyggingu og brunnu að minnsta kosti tíu kennslustofur til kaldra kola. Þá var kveikt í fjölda bíla og ruslagáma. Lögregla er með sex í haldi eftir átök næturinnar og þar af eru tveir grunaðir brennuvargar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×