Unnur Birna á nýjum bíl með fataskápinn í skottinu 14. janúar 2008 17:18 MYND/Vilhelm Gunnarsson
Fegurðardrottingin og lögfræðineminn Unnur Birna Vilhjálmsdóttir, fékk sér glænýjan og glansandi fínan Hyundai i30 á dögunum. Unnur var áður á jeppling, sem hún segir hafa hentað vel í hestamennskunni, en langaði í minni bíl til almennra nota. „Ég ákvað að minnka við mig og fara á smábíl fyrir innanbæjarsnattið", segir Unnur. Hún býr til skiptis í Árbæ og Garðabæ, og þarf því ekki að hafa áhyggjur af stæðum þar, en segir stærð bílsins hins vegar koma sér vel þegar þarf að leggja honum fyrir utann Háskólann í Reykjavík, þar sem hún lærir lögfræði. Aðspurð hvort hún sé sú manngerð sem haldi bílnum sínum ávallt óaðfinnanlega hreinum, segir Unnur að bíllinn sé með nú afar hreinn og fínn með tilheyrandi hreinlætislykt, enda splunkunýr. Það sé þó ekki víst að það ástand verði viðvarandi. „Ég bý náttúrulega á tveimur stöðum, og þá býr maður oft í bílnum líka." segir Unnur, og bætir því við að þá eigi til að myndast útibú af fataskápnum í skottinu. Það er nóg að gera hjá Unni þessa dagana. Hún er á öðru ári í lögfræði, hefur unnið að verkefnum fyrir Icelandic glacial, auk þess sem hún vinnur við þáttinn hans Bubba. Hún segist oft ekki skilja hvernig hún fari að því að komast yfir allt sem hún kemur sér í. ,,Ég var í tökum fyrir bandið hans Bubba í haust, gat lítið mætt í tíma og hélt að ég myndi ekki hafa þetta." Álagið virðist þó ekki alslæmt. „Það hentar mér þó greinilega mjög vel að hafa brjálæðislega mikið að gera." segir Unnur, en henni hefur aldrei gengið betur í skólanum en einmitt í haust.
Mest lesið Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Lífið Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Lífið 50+: Fólk upplifir sig yngra en áður – og þróunin heldur áfram Áskorun Margaret Kerry er látin Bíó og sjónvarp Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur Lífið Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Lífið Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Lífið Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Lífið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Lífið Fleiri fréttir Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Sjá meira