Langt á eftir nágrannaþjóðum í þjónustu við geðfatlaða 18. febrúar 2008 15:59 Kristófer Þorleifsson, formaður Geðlæknafélags Íslands.
Formaður Geðlæknafélags Íslands segir Íslendinga langt á eftir nágrannaþjóðunum í þjónustu við geðfatlaða og kallar eftir því að yfirvöld fari að sinna þessum hópi í stað þess að minnka við það þjónustuna eins og nú sér gert. Stjórn Geðlæknafélagsins sendi í morgun frá sér ályktun þar sem stjórnvöld eru hvött til að hætta við að loka starfsendurhæfingu Bergiðjunnar við Kleppspítala og sömuleiðis að breyta deild 28 í Hátúni 10 úr sólarhringsdeild í dagdeild. Kristófer Þorleifsson, formaður Geðlæknafélags Íslands, bendir á að nú þegar sé búið að loka Bergiðjunni en þar vann um tugur fólks í starfsendurhæfingu við hannyrðir og smíðar. Hann gagnrýnir að ekki hafi verið gerðar ráðstafanir varðandi hópinn áður en tekin var ákvörðun um að loka Bergiðjunni. Kristófer segir það enn meira áhyggjuerfni að ætlunin sé að breyta deild 28 í Hátúni úr sólarhringsdeild í dagdeild. Hann segir að með breytingunni sé verið að spara laun eins ófaglærðs manns á næturvakt en með henni með verði deildin ekki jafngóð endurhæfingardeild og nú. Þá snerti breytingin 60-80 manns sem búa í blokkunum í Hátúni og tengjast endurhæfingunni. Formaður Geðlæknafélagsins segir enn fremur að það sem af er öldinni hafi mjög verið þrengt að geðsviði Landspítalans og bráðaplássum og endurhæfingar- og langtímarúmumhafi fækkað um á annað hundrað. Geðlæknafélagið gagnrýni að ráðist sé í lokanir án þess að nokkur önnur úrræði komi í staðinn. Kristófer segir Íslendinga langt á eftir nágrönnum sínum varðandi endurhæfingu geðfatlaðra. „Það þarf að samtvinna betur félagsleg úrræði og heilbrigðisþjónustu," segir Kristófer. Hann bendir á að geðdeildin sé komin í svipaðan vanda og ýmsar deildir á Landspítalanum þar sem ekki er hægt að taka á móti fólki vegna þess að aldraðir eru í sjúkrarúmunum þar sem þeir fái ekki inni á hjúkrunarheimilum. „Fólk bíður eftir því að komast í endurhæfingu," segir Kristófer og á þar meðal annars við nokkra tugi manna á bráðadeild. Aðspurður segir Kristófer að geðlæknar á Landspítalanum hafi lýst vanþóknun sinni með þróun mála en sviðsstjórum sé sagt að spara vegna framúrkeyrslu. Kristófer bendir á að geðdeildinni hafi verið falið að sinna nýjum verkefnum, eins og að koma á fót átröskunarteymi og reka nokkurs konar sambýli í húsum á lóð Kleppsspítala, en fjármunir hafi ekki fylgt því. Kristófer segir um viðvarandi vanda að ræða. „Við erum langt á eftir nágrannaþjóðum okkar í samfélagsþjónustu við langveika og við eigum fara að þjónusta þetta fólk í stað þess að minnka við það þjónustuna," segir Kristófer.
Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Innlent Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Innlent „Þýðir ekki að það sé algjört töfralyf við öllum sjúkdómum“ Innlent Enginn meirihluti í Grindavík Innlent Fleiri fréttir „Búinn að vera í löngu atvinnuviðtali hér í bæ“ „Þýðir ekki að það sé algjört töfralyf við öllum sjúkdómum“ Þjóðaratkvæðagreiðsla í sumar og hvalveiðibátur á sjó Handsala samstarfið og gera Hilmar að bæjarstjóra Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum Sjá meira