Lýsir áhyggjum af stöðu ríkissjóðs 18. febrúar 2008 12:10 Valgerður Sverrisdóttir hefur áhyggjur af stöðu ríkissjóðs í ljósi nýjustu sviptinga í efnahagslífinu. MYND/GVA
Valgerður Sverrisdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins, fagnar því að samningar hafi náðst á vinnumarkaði en lýsir yfir áhyggjum af stöðu ríkissjóðs í ljósi breytinga á markaði og síðustu fjárlagagerðar. „Það er ánægjulegt að það skuli hafa náðst samningar og það samningar þar sem sérstaklega er bætt staða þeirra sem lægst hafa launin. Ég óska aðilum vinnumarkaðarins til hamingju með samninginn," segir Valgerður. Um framlag ríkisstjórnarinnar segir Valgerður að þar kenni margra grasa sem séu kunnugleg og henni sýnist sem þar séu tillögur sem framsóknarmenn geti fallist á. Hins vegar sé óljóst hver staða ríkissjóðs sé eftir samninga. „Það er ljóst að tekjur ríkissjóðs minnka vegna breytinga á markaði að undanförnu og það bætist við fjárlögin í ár sem við framsóknarmenn gagnrýndum harðlega enda var um að ræða 20 prósenta hækkun frá fyrra ári," segir Valgerður. Framsóknarmenn hyggjast funda í dag þar sem rætt verður um það til hvaða fagaðila verði leitað til að fá álit á rekstrarstöðu ríkissjóðs bæði í ár og næstu ár. Aðspurð hvort nýir kjarasamningar muni að hennar mati stuðla að lækkun verðbólgu og vaxta í landinu segir Valgerður að óvissuþættinir séu margir. Hún veltir fyrir sér hvernig Seðlabankinn muni meta samningana. „Mun hann meta samningana sem verðbólguhvata og halda vöxtum áfram háum?" spyr Valgerður. Þá bendir hún að fram undan sé hækkun á matvælaverði meðal annars vegna lækkandi gengis krónunnar og það auki á verðbólguna. „Það er eitt púsluspil að ná fram viðunandi vöxtum og verðbólgu hér á landi og því er áfram mikið verka að vinna," segir Valgerður.
Mest lesið „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Innlent María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Innlent Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Innlent Bandaríkjamenn vilji að stríðinu verði lokið í júní Erlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fleiri fréttir „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi Sjá meira