Arabísk kona notar YouTube í kvennabaráttu 11. mars 2008 15:34 Wajeha Al-Huwaider undir stýri í myndbandinu. MYND/YouTube
Sádi-Arabísk kona hefur sett myndband af sjálfri sér undir stýri á YouTube til að þrýsta á þarlend yfirvöld að auka réttindi kvenna og leyfa þeim að keyra bíl. Wajeha Al-Huwaider er með ökuskírteini, en hún má einungis keyra á afskekktum svæðum í Sádí-Arabíu. Hún segir að hömlurnar lami helming þjóðarinnar og vill að yfirvöld leyfi konum að keyra í borgum. Í myndbandinu sem hún tók í tilefni af alþjóðlegum degi kvenna sem var á laugardag, biðlar hún á arabísku til innanríkisráðherra landsins að leyfa konum að keyra.Wajeha og 125 aðrar konur hafa skrifað undir beiðni til ráðherrans um málið. Fyrri beiðnum til konungsins í landinu hefur ekki verið svarað. Myndbandið má sjá hér. Það hefur verið skoðað meira en 23 þúsund sinnum á YouTube frá því það var birt á föstudag. Egypski dálkahöfundurinn Mone El-Tahawy sagði CNN að hún teldi að aðferðin myndi bera árangur. „Hún hefur verndað sjálfa sig á mjög snjallan hátt og með því að nota YouTube. Hún hefur líka tengt við internetið sem er að verða afar áhrifaríkt valdatæki í Arabaheiminum," sagði hún. Síðast þegar konur kröfðust opinberlega réttar síns til að fá að keyra í Sádi-Arabíu var árið 1990. Trúarlögreglan handtók þá kvenkyns ökumenn og niðurlægði þá á almannafæri. Í kjölfarið voru sett trúarlög sem bönnuðu konum að keyra í borgum landsins. Mágkona Wajeha var með henni í bílnum og gengdi hlutverki kvikmyndatökumanns.
Mest lesið Lögreglumaður á sjúkrahúsi eftir alvarlega árás á Goslokahátíð Innlent „Við ætlum að upplifa stóra drauminn hans Kristians Helga” Innlent Keyptu ónýtt hús og fá ekki áheyrn Innlent „Þetta virðast vera einu gjöldin sem ekki má snerta“ Innlent Skipstjóri handtekinn í Reykjavíkurhöfn Innlent Piltur reyndi að stöðva árás föður sem ógnaði móðurinni með hníf Innlent Nýjasta útspil Ísraela á Gasa minni á „lokalausn“ nasistanna Innlent Ákvörðun dómsmálaráðherra gríðarleg vonbrigði Innlent Kolfelldu tillögu minnihlutans: „Það er meirihlutinn sem stýrir dagskránni“ Innlent Lögreglan lýsir eftir Hebu Ýr Innlent Fleiri fréttir Náðu myndum af gesti frá annarri stjörnu Harma dauða ráðherrans en tjá sig ekki um hann Sakfelldir fyrir að kveikja í iðnaðarhúsnæði fyrir Wagner-málaliða Hafnar gagnrýni á samskipti við lyfjarisa í faraldrinum Bresk stjórnvöld hyggja á aðgerðir gegn trúnaðarsamningum Ekki fleiri greinst með mislinga í Bandaríkjunum í 33 ár Vill safna íbúum Gasa í lokaðar búðir og flytja síðan á brott Bandamenn fá hótunarbréf um 25 til 40 prósent toll „Þeir verða að geta varið sig“: Hættir við að hætta vopnasendingum Yfir hundrað látnir í Texas Ellefu dagar milli nýrra jarðganga í Færeyjum Samgönguráðherrann lést daginn sem Pútín rak hann Pútín rekur samgönguráðherrann eftir miklar raskanir á flugi Eldgos í Lewotobi Laki Laki í Indónesíu Líkir tilætlunum Musk við lestarslys Fundin sek um að myrða ættingja með eitruðum sveppum Á níunda tug látin í hamfaraflóðum Friðarviðræður hafnar í Katar og Netanyahu heldur til Washington Banamaður ráðherra fær að stíga fæti út fyrir fangelsið Um sjötíu látnir í flóðunum og stúlknanna enn leitað Hegseth hafi logið því að gengið sé á vopnabirgðir Bandaríkjanna Fjörutíu og þrír látnir og umfangsmiklar leitarðagerðir standa yfir Elon Musk stofnar nýjan stjórnmálaflokk Leynileg neyðarfjárveiting Dana til flugvallagerðar á Grænlandi Tuttugu og fimm stúlkna saknað úr sumarbúðum vegna flóða Minnst þrettán látnir og tuttugu barna saknað eftir flóð í Texas Rússar sagðir nota efnavopn í Úkraínu í auknum mæli Tveir ferðamenn létust í fílaárás í Sambíu Stunguárás í Tampere hvorki talin hryðjuverk né rasísk árás Sænskur glæpaforingi tekinn fastur í Tyrklandi Sjá meira