Hættu við áætlunarflug vegna einkaþotu á kostakjörum Andri Ólafsson skrifar 2. apríl 2008 20:20
Forsætisráðuneytið var búið að bóka áætlunarflug til Búkarest með viðkomu í London í eina nótt áður en ákvörðun var tekin um að fljúga frekar á Nato fundinn með einkaþotu. Að sögn Grétu Ingþórsdóttur, aðstoðarkonu Geirs Haarde, var ákveðið að taka síðari kostinn þegar í ljós kom að kostnaðurinn væri aðeins 100 til 300 þúsund krónum meiri. Að sögn Grétu fékk forsætisráðuneytið "mjög góðan díl" hjá fyrirtækinu sem leigði út einkaþotuna. Hún vill þó ekki gefa upp nákvæman kostnað. Samkvæmt heimildum Vísis naut forsætisráðuneytið ríflegs afsláttar frá fyritækinu Icejet, sem leigir ráðuneytinu vélina. Það réði úrslitum þegar ákvörðunin var tekin. Það skal tekið fram að í útreikningum Vísis í gærkvöld á kostnaði við flugferðina var hins vegar stuðst við þau verð sem Icejet býður venjulegum viðskiptum án alls afsláttar. Gréta Ingþórsdóttir segir að með ákvörðuninni hafi náðst mikil tímasparnaður. Geir og Ingibjörg hafi náð fundi með Seðlabankanum í gærkvöldi sem ella hefði ekki tekist. Þá hafi Geir einnig náð að mæta í viðtal hjá blaðamanni Financial Times og á þingflokksfund hjá Sjálfstæðisflokknum. Þess má geta að flugferðin með einkaþotunni gekk vel í dag. Lagt var af stað snemma í morgun og flogið áleiðis til Stavanger í Noregi. Á leiðinni þangað var flugfarþegum boðið upp á ommelettu í morgunmat. Í Stavanger var stoppað í hálftíma á meðan vélin var fyllt af eldsneyti. Svo var haldið til Búkarest en á leiðinni þangað var Geir, Ingibjörgu og föruneyti þeirra boðið upp á kjúkling.
Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi Innlent „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Innlent Fleiri fréttir Ógnandi, vopnaður hníf og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli Sjá meira