Skoska lögreglan fann aðra hönd 2. apríl 2008 10:42 Lögreglumenn á hestum á strönd á Skotlandi. MYND/AFP
Lögregla sem rannsakar Arbroath strönd í Skotlandi þar sem höfuð konu og hönd fundust í gær, hefur fundið aðra hönd. Tvær ungar systur fundu höfuðið í plastpoka í gær þar sem þær voru að leik í gærmorgun. Meiriháttar lögreglurannsókn var þá sett af stað og sérstakt teymi alvarlegra glæpamála á vegum innanríkisráðuneytisins kallað til. Nú er verið að reyna að komast að því hver konan var, meðal annars með því að fara í gegnum allar tilkynningar um konur sem er saknað. Graham McMillan yfirrannsóknarlögreglumaður sem leiðir rannsóknina sagði Sky fréttastofunni að yfirvöldum væri mikið í mun að finna út hver konan væri. Líkamspartarnir hefðu verið fjarlægðir af ströndinni og krufnin yrði framkvæmd í dag með frekari réttar- og meinafræðirannsóknum. Hann telur þó að rannsóknin sé á frumstigi og það muni taka nokkra daga þar til niðurstöður varpi frekara ljósi á málið. McMillan sagði að vegna mikilla rigninga á svæðinu væri erfitt að segja til um hvort eða hversu lengi höfuðið hefði verið í sjónum. Hluta strandarinnar, sem er vinsæll útivistastaður fyrir hundaeigendur, hefur verið lokað. Íbúar bæjarins Arbroath í Angus eru miður sín vegna fundarins. „Þetta er eitthvað sem maður heyrir um í stórborgum. Ég bjóst aldrei við að svona myndi gerast hér," sagði Patricia Miller íbúi bæjarins við Sky.
Mest lesið Lögregla fékk send myndbönd af árásinni frá vegfarendum Innlent Kári Stefánsson fordæmir vinnubrögð Moggans Innlent Óvæntur stórsigur í Texas hringir bjöllum hjá Repúblikönum Erlent Vilja kengbeygja kvenfélagið og krefjast Ketiláss alls Innlent Fara fram á síbrotagæslu yfir stjúpprinsinum sem var aftur handtekinn í gær Erlent Hljóp upp í fjall eftir árekstur og neitaði að koma niður Erlent „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Innlent Trump lokar Kennedy-miðstöðinni í tvö ár „vegna endurbóta“ Erlent Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Innlent Skýr skilaboð um að það borgi sig ekki að leita til Íslands Innlent Fleiri fréttir Varpa loksins ljósi á umdeilt samkomulag Epsteins frá 2008 Musk segir spænsk stjórnvöld hyggja á „þjóðarmorð“ Herða lög um brottvísanir: „Yfir á rauðu í von um að ljósið verði grænt“ Birtu nektarmyndir af ungum konum fyrir mistök Fara fram á síbrotagæslu yfir stjúpprinsinum sem var aftur handtekinn í gær Efast um að öll Epstein-skjölin séu ekta „Njósnasjeik“ keypti Trump-félag og fékk flögur Yfirmaður flóttamannastofnunar segir af sér vegna Epstein-tengsla Óvæntur stórsigur í Texas hringir bjöllum hjá Repúblikönum Leystu upp alla stjórnmálaflokka landsins Trump lokar Kennedy-miðstöðinni í tvö ár „vegna endurbóta“ Hinn fimm ára Liam laus úr haldi og kominn heim Hljóp upp í fjall eftir árekstur og neitaði að koma niður „Getur Mette-Marit orðið drottning eftir þetta?“ Dróni hæfði farþegarútu fulla af námuverkamönnum Lést á sjúkrahúsi mánuði eftir harmleikinn Opna landamærin og fjöldi fluttur frá Gasa Æðstiklerkur segir hvers konar árás geta hrint af stað stríði Dómari krefst þess að Liam og föður hans verði sleppt úr haldi Barn í lífshættu eftir skotárás á skrúðgöngu Mette-Marit biðst afsökunar á tengslum sínum við Epstein „Erum rétt byrjuð að sjá ofan í þennan forarpytt“ Fjöldi ásakana um brot gegn barnungum stúlkum Nýbirt skjöl varpa ljósi á dánarstund Epstein Ákæru fyrir manndráp vísað frá Trump útnefnir Warsh sem næsta seðlabankastjóra Tíu ákærðir fyrir að drepa friðaða úlfa Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Trump segir Pútín hafa samþykkt hlé á árásum á Kænugarð Sjá meira