Innlent

Réðust á lögreglumann í heimahúsi í Kópavogi

Ráðist var á lögreglumann um miðnætti við heimahús í austurbæ Kópavogs. Lögreglan hafði verið kölluð að húsinu vegna hávaða. Þegar lögreglumaðurinn reyndi að ræða við veislugesti sem þar voru var hann skallaður, tekinn hálstaki og svo snúinn niður.

Þegar félagi hans reyndi að koma honum til aðstoðar hindruðu aðrir veislugestir hann. Hann kallaði þá eftir liðstyrk og kom fjölmennt lið lögreglunnar á staðinn. Þeir beittu varnarúða og kylfum til að yfirbuga árásarmennina og ná tökum á ástandinum.

Alls voru fimm handteknir. Fjórir þeirra bíða enn yfirheyrslu þar sem ekki hefur reynst unnt að yfirheyra þá sökum annarlegs ástands. Lögreglumaðurinn var fluttur til skoðunar á slysadeild en reyndist ekki alvarlega slasaður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×