Lífið

Dauði Heaths var slys

Dauði Heaths Ledgers var slys, tilkominn vegna misnotkunar á lyfsseðilsskyldum lyfjum. Þetta er niðurstaða eiturefnarannsóknar sem réttarmeinafræðingar kynntu í dag.

Sex tegundir lyfja fundust í blóði leikarans, oxycodone, hydrocodone, diazepam, temazepam, alprozolam og doxylamine.

Leikarinn fannst látinn í íbúð sinni í New York 22. janúar síðastliðinn. Sex tegundir lyfja fundust í íbúðinni, þar á meðal svefntöflur, kvíðastillandi lyf og ofnæmislyf. Mörgum lyfjanna hafði verið ávísað í evrópu, þar sem Heath hafði verið við tökur.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.