Lífið

Angelina óttaðist að Brad færi frá henni ef hún eignaðist ekki barn

Nýjasta viðbót í barnaskara Brangelinu gæti verið afleiðing óöryggis frekar en eggjahljóða. Samkvæmt heimildamanni National Enquirer var óttaðist Angelina það allt síðasta ár að Brad færi frá henni ef hún eignaðist ekki annað barn með honum.

Heimildamaðurinn segir að þó Brad elski ættleiddu börnin þrái hann að dreifa genunum frekar. Skötuhjúin hafi ítrekað rifist heiftarlega um hvort þau ættu að ættleiða næsta barn eða splæsa í eitt heimatilbúið.

Angelina varð á endanum óörugg og komst að þeirri niðurstöðu að nýtt barn myndi bæta ástandið á heimilinu. Þá kom annað babb í bátinn, en Angelina átti í miklum vandræðum með að verða ólétt. Hún brá á það ráð að fara í tæknifrjógvun, sem gekk svo glimrandi að hún varð ólétt að tvíburum.

Skötuhjúin munu vera í skýjunum, en Angelinu einnig mjög létt. „Hún var búin að reyna í marga mánuði að verða ófrísk náttúrulega, og var farin að óttast að hún myndi aldrei eignast annað barn. Hún trúir því að þetta muni loksins leysa ágreininn milli þeirra." sagði heimildamaðurinn.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.