Safna fé til styrktar Færeyingum í nauð 25. febrúar 2008 21:29 Fimmtán bátar brotnuðu.
Opnaður hefur verið söfnunarreikningur í Glitni til stuðning frændum vorum Færeyingum vegna tjóns sem þeir urðu fyrir þegar mikið óveður gekk yfir landið um síðustu mánaðarmót. Í fréttatilkynningu sem aðstandendur söfnunarinnar hafa sent frá sér segir að í því mikla óveðri sem hafi gengið yfir Færeyjar um mánaðarmótin janúar-febrúar hafi þorpið Skálavík á Sandey orðið fyrir gríðarlegum ágangi sjávar. Brim hafi gengið langt upp á land og brotið niður mannvirki við höfnina, m.a. fiskverkunarhús. Nær allir útróðrarbátar í höfninni hafi sokkið og þeir sem á landi hafi verið hafi brotnað í spón. Samtals hafi 15 af 16 bátum þorpsbúa sokkið og brotnað. Brimvarnargarði hafi skolað að miklu leyti inn í höfnina þannig að hún hafi fyllst af grjóti og orðið ónothæf. Þá hafi kirkjugarður þorpsins orðið fyrir miklum skemmdum. „Þorpið Skálavík er um 250 manna samfélag sem algjörlega byggir afkomu sína á sjávarútvegi og sjósókn á minni bátum er eina atvinna þorpsbúa. Óhætt er því að segja að allt atvinnulíf sé lamað eftir þetta gríðarlega áfall og þetta litla samfélag þarf nauðsynlega aðstoð til að koma undir sig fótunum á ný. Er það von okkar að íslenska þjóðin sýni bræðraþjóð okkar þann hlýhug að styrkja þá fjárhagslega í erfiðleikum þeirra. Minnumst rausnarlegrar framgöngu Færeyinga er náttúruöflin léku íslensk byggðarlög hart og við þurftum á stuðningi þeirra að halda. Nú er komið að okkur að rétta frændum okkar hjálparhönd," segir í tilkynningu. Reikningsnúmer söfnunarinnar er 0565-14-607914, kt. 270366-3419. Reikningurinn verður opinn til 14. mars næstkomandi. Þeir sem standa að fjársöfnuninni til styrktar sjávarþorpinu Skálavík eru Niels J. Erlingsson, Árni Hilmarsson og Fjalar Freyr Einarsson.
Mest lesið Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent Birtu ekki baulið Erlent Berglind rétt marði Þórhall Innlent Fleiri fréttir Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ Sjá meira