Stofna hlutafélag um REYST orkuskóla 25. febrúar 2008 15:02 Svafa Grönfeldt, rektor HR, Kjartan Magnússon, stjórnarformaður OR, og Kristín Ingólfsdóttir, rektor HÍ.
Rektorar Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík skrifuðu í dag undir hluthafasamkomulag vegna REYST orkuskólans ásamt stjórnarformanni Orkuveitu Reykjavíkur. Skólinn hefur starfsemi í haust og verður hann til húsa í höfuðstöðvum Orkuveitu Reykjavíkur en kennsla fer einnig fram í háskólunum tveimur. Samkvæmt samkomulaginu verður hlutafélagið í jafnri eigu háskólanna tveggja og Orkuveitunnar. Skráning nemenda á fyrsta starfsár skólans stendur yfir og hefur fjöldi fyrirspurna borist víða að úr veröldinni eftir því sem segir í tilkynningu frá Orkuveitu Reykjavíkur. Stjórn REYST er skipuð Önnu Skúladóttur, sem er fulltrúi Orkuveitunnar og stjórnarformaður, Gunnar Guðna Tómassyni frá HR og Magnúsi Þór Jónssyni frá HÍ. REYST er skammstöfun á heiti skólans, sem fullu nafni heitir Reykjavik Energy Graduate School of Sustainable Systems. Þar mun íslenskum og erlendum stúdentum standa til boða framhaldsnám á háskólastigi í orkuvísindum þar sem grunnþættirnir eru náttúra, tækni og markaður. Háskólarnir tveir eru faglegir bakhjarlar skólans og munu nemendur einnig njóta faglegrar þekkingar innan Orkuveitu Reykjavíkur auk þess sem fyrirtækið er fjárhagslegur bakhjarl skólans. „Aðaláhersla verður lögð á þau svið þar sem Íslendingar hafa samkeppnisforskot. Boðið verður upp á rannsóknatengt meistaranám og doktorsnám auk námskeiða fyrir sérfræðinga og stjórnendur fyrirtækja í orkugeiranum og fjármálastofnunum sem og fyrir opinberar stofnanir innan lands og utan. Megináhersla í meistaranáminu verður á jarðhitavísindi til að byrja með og við REYST verða kennd 15 sérsniðin námskeið á sviði orkuvísinda og að auki velja nemendur meistaranámskeið við HÍ og HR. Námið er þverfaglegt þar sem áhersla getur verið á verkfræði, viðskiptafræði eða jarðvísindi," segir í tilkynningu.
Mest lesið Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Erlent „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Innlent Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Innlent Flutningabílar fastir á Þröskuldum Innlent Valgarð Már er látinn Innlent Fleiri fréttir Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð „Eftirlit sveitarfélaga með fósturbörnum er brotið“ Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Sjá meira