Fer fyrir 30 manna hópi á fundi kvennanefndar SÞ 25. febrúar 2008 14:49 MYND/Pjetur
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra fer fyrir um 30 manna hópi sem nú er staddur á fundi kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna í New York. Aðalþema fundarins er fjármögnun jafnréttisbaráttunnar. Fram kemur í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu að 45 ríki eigi sæti í nefndinni hverju sinn og lýkur kjörtímabili Íslands, sem átt hefur sæti í henni síðastliðin fjögur ár, með þessum fundi. Utanríkisráðherra flytur ræðu á ráðherrafundi kvennanefndarinnar í dag og mun einnig taka þátt í hringborðsumræðum um reynsluna af jafnréttisbaráttunni, hvaða leiðir hafi gefist vel og hverjar síður. „Í ræðu sinni mun Ingibjörg Sólrún leggja áherslu á jafnréttismál sem eitt af lykilatriðum íslenskrar utanríkisstefnu og málefni þar sem styrkleiki Íslands á alþjóðavettvangi liggi. Einnig mun hún kynna þróunarverkefni Íslendinga sem miða að því að bæta stöðu kvenna víðs vegar um heim," segir í tilkynningunni. Norðurlandaþjóðirnar standa fyrir sameiginlegum hliðarviðburði á fundinum þar sem fjallað verður um ráðstafanir til að berjast gegn ofbeldi karla gagnvart konum, heiðurstengt ofbeldi og ráðstafanir til að berjast gegn mansali. Ráðherra flytur þar ávarp og fjallar um hvað hefur verið gert til að koma í veg fyrir ofbeldi gagnvart konum á Íslandi. Enn fremur verður Ísland í kastljósinu á miðvikudag þegar Stígamót, Kvenréttindafélag Íslands og UNIFEM standa fyrir viðburði sem kallast Gróska, kraftur, ánægja. Þar verður fjallað um hvernig Íslendingar efli konur til dáða, um stöðu innflytjendakvenna og um óvenjulega sýn á fegurðina en heimildarmynd Matthildar Helgadóttur, Óbeisluð fegurð verður, sýnd. Ennfremur mun Kristín Ástgeirsdóttir, forstöðukona Jafnréttisstofu, kynna tilhögun feðraorlofs á Íslandi í umræðum á miðvikudag. Kvennanefnd Sameinuðu þjóðanna heyrir undir Efnahags- og félagsmálaráð SÞ og er markmið hennar að vinna að auknu jafnrétti karla og kvenna. Sú venja hefur skapast meðal Norðurlandaþjóðanna að eitt þeirra á þar ávallt sæti og tók Ísland sæti í nefndinni árið 2004. Svíar munu taka við keflinu af Íslendingum þegar fundinum lýkur 7. mars.
Mest lesið „Fólk er bara slegið“ Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Selenskí kíkti á klakann Erlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Fleiri fréttir Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Fleiri en einn yfirheyrður en enginn í haldi Segir afnám vaxtabóta bitna á tekjulágum heimilum Blása á gagnrýni og opna dagatalið „Fólk er bara slegið“ Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Sjá meira