Telur Vilhjálm hafa stigið stórt skref 25. febrúar 2008 12:25
Forsætisráðherra segir að yfirlýsing borgarstjórnarflokks Sjálfstæðismanna í gær hafi bundið enda á óvissuna í borginni. Hann telur Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson hafa stigið stórt skref með þeirri yfirlýsingu að enn væri opið hver tæki við stöðu borgarstjóra að ári.Geir H. Haarde forsætisráðherra sat fyrir svörum í þættinum Mannamáli hjá Sigmundi Erni Rúnarssyni í gærkvöldi, meðal annars um stöðuna í borgarstjórnarflokkinum og yfirlýsingu Vilhjálms Þ.Geir sagði Vilhjálm nú vera búinn að opna á það að það verði einhver annar en hann sem taki við embættinu. „Það finnst mér vera stórt skref af hans hálfu til að mæta þeirri gagnrýni sem hann hefur orðið fyrir," segir Geir.Síðastliðinn sunnudag gaf Geir borgarstjórnarflokknum viku til að taka af skarið. Aðspurður hvort þetta kallaðist að taka af skarið sagði Geir að nú væri bundinn endi á það óvissuástand sem skapast hefði fyrir hálfum mánuði. „Það er það sem var vandamálið frá því fyrir um það bil tveimur vikum. Nú er búið að loka því með þessum hætti, það er gefin út yfirlýsing. Það liggur fyrir að Vilhjálmur verður oddviti þangað til annað verður ákveðið," segir Geir.Sigmundur Ernir benti á að það væri engin vissa um hver yrði borgarstjóraefni flokksins vegna þess að flokkurinn kæmi sér ekki saman um það. „Það liggur fyrir að það verður sjálfstæðismaður sem tekur við eftir 13 mánuði," svaraði Geir.Aðspurður hvort hann styddi Vilhjálm sem borgarstjóraefni flokksins sagði Geir: „Ef það er niðurstaðan þá mun ég auðvitað styðja hana."Hér má sjá viðtalið í Mannamáli í heild sinni
Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Fleiri fréttir Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Sjá meira