Ákveðin framför frá óvissu í síðustu viku 25. febrúar 2008 11:30 MYND/GVA
Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði, segir þá ákvörðun borgarstjórnarflokks sjálfstæðismanna að ákveða í sameiningu hver verði borgarstjóri eftir rúmt ár, umtalsverða framför frá þeirri óvissu sem ríkti í síðustu viku. Hann telur að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti flokksins, hafi í raun gefið frá sér borgarstjórnarstólinn með ákvörðuninni í gær. Fram kom í tilkynningu borgarstjórnarflokksins í gær að hann styddi Vilhjálm áfram sem oddvita flokksins og ekki væri ástæða til að taka þá ákvörðun nú hver yrði borgarstjóri þegar Ólafur F. Magnússon hverfur úr borgarstjórastól í mars 2009. Vilhjálmur sagði sjálfur að það væri opið hver tæki við borgarstjóraembættinu. Aðspurður um stöðuna í borginni nú segir Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði, að komin sé einhvers konar lending í málinu. „Ég tel það mjög ólíklegt að Vilhjálmur blandi sér í þetta og hann er í raun búinn að láta þetta frá sér," segir Gunnar Helgi um borgarstjóraembættið og yfirlýsingar sjálfstæðismanna. Þá segir hann að ástandið nú sé betra en í síðustu viku þegar ekki hafi verið ljóst hvernig sjálfstæðismenn myndu taka á málinu. Aðspurður hvort ekki sé enn óvissa í borginni þar sem ekki liggi fyrir hver taki við borgarstjóraembættinu segir Gunnar Helgi að það væri vissulega sterkara fyrir sjálfstæðismenn að vera með oddvita sem væri ekki á útleið. Flokkurinn hljóti að komast að niðurstöðu um nýjan oddvita en til þess þurfi hann tíma. Fram kom í Morgunblaðinu í dag að borgarfulltrúarnir Hanna Birna Kristjánsdóttir, Gísli Marteinn Baldursson og Júlíus Vífill Ingvarsson hafi öll áhuga á að taka við borgarstjóraembættinu. Aðspurður segir Gunnar Helgi enga leið að leggja mat á það hvort eitt þeirra teljist líklegra en hin til þess að taka við embættinu. Þá grípur hann til handboltalíkingar aðspurður hvort þremenningarnir séu komnir í einhvers konar kosningabaráttu. „Þau hljóta að vera búin að stilla upp. Þetta er fólk sem ætlar sér hluti í pólitík og það er fullkomlega eðlilegt," segir Gunnar Helgi.
Mest lesið Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Erlent „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Innlent Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Innlent Flutningabílar fastir á Þröskuldum Innlent Valgarð Már er látinn Innlent Fleiri fréttir Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð „Eftirlit sveitarfélaga með fósturbörnum er brotið“ Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Sjá meira