Innlent

Tveir teknir fyrir fíkniefnaakstur á sömu bifreið

MYND/KK

Tveir ökumenn voru stöðvaðir á Akureyri um helgina, annar á laugardag og hinn á sunnudag, grunaðir um að aka undir áhrifum fíkniefna. Í báðum tilfellunum var um sömu bifreiðina að ræða sem ökumennirnir óku.

Þá handtók lögreglan mann á föstudag með nokkur grömm af kannabisefnum í fórum sínum. Fram kemur í frétt lögreglunnar á Akureyri að hann hafi verið látinn laus af yfirheyrslu lokinni og telst málið upplýst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×