Istorrent málinu vísað frá dómi án niðurstöðu 27. mars 2008 22:39 Svavar Lúthersson.
Istorrent málinu svokallaða var vísað frá í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Samtök rétthafa höfðuðu mál á hendur Svavari Lútherssyni, forsvarsmanni Istorrent síðunnar en þar gátu netverjar hlaðið niður höfundaréttarvörðu efni án endurgjalds. Dómurinn tók ekki afstöðu til málsins heldur vísaði hann því frá á þeim forsendum að hugsanlega geti lög um rafræna þjónustu stangast á við lög um höfundarrétt í málinu. Lögbann sem sett var á Istorrent síðuna stendur enn þótt málinu hafi verið vísað frá. „Í stað þess að kveða beint upp um sekt eða sýknu var ákveðið að vísa málinu frá," segir Svavar Lúthersson á heimasíðunni istorrent.is „Kom hann (dómurinn, innsk.blm) mér mjög á óvart og sömuleiðis stefnendum í málinu. Voru stefnendur nokkuð vonsviknir yfir þessari ákvörðun réttarins og er talið líklegt að þeir munu áfrýja frávísuninni til Hæstaréttar." „Í úrskurðinum er kveðið á um að málið sé talið vanreifað þar sem hvorki stefnendur né stefndu hafi fjallað nánar um þýðingu laganna í þessu máli og er því ekki hlutverk dómstóla að leggja sjálfstætt mat á þýðingu laganna í málinu. Málinu var því vísað af sjálfsdáðum frá dómi. Stefnendur þurfa því að greiða óskipt Istorrent ehf. og Svavari Lútherssyni, 500.000 krónur í málskostnað. Ekki var lagt efnislegt mat að þessu sinni hvort þeim beri að greiða annan skaða sem varð vegna lögbannsins en það verður að öllum líkindum gert síðar," segir Svavar einnig.
Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Fleiri fréttir Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Sjá meira