Franskur raðmorðingi þegir í réttarsalnum 27. mars 2008 15:04
Frakkinn Michel Fourniret, sem grunaður er um að hafa myrt og misnotað sjö stúlkur og konur í Frakklandi og Belgíu á árunum 1987 - 2003, neitaði að tjá sig um málið við dómara í dag yrði réttarsalurinn ekki ruddur. Eiginkona Fournirets er ákærð í sama máli fyrir vitorð við fimm morðanna. Málið er eitt stærsta raðmorðmál sem komið hefur inn á borð franskra yfirvalda og hefur vakið verðskuldaða athygli þar í landi. Meðal annars hefur Fourniret verið líkt við hinn belgíska Marc Dutroux sem hlaut lífstíðardóm árið 2004 fyrir kynferðisbrot gegn börnum. Þegar dómari bað Fourniret að greina frá nafni sínu við upphaf réttarhaldanna hélt sakborningurinn á lofti miða sem á var ritað: „Ég segi ekki orð nema réttarhöldin verði fyrir luktum dyrum." Enn fremur afhenti Fourniret dómaranum skjal bundið í rauðan borða sem hann kvað vera skilaboð til fjölskyldna fórnarlamba hans og fór þess á leit að dómarinn læsi skjalið. Dómarinn varð hvorki við þeirri beiðni né beiðni Fournirets um lokað réttarhald. Þá hefur Fourniret látið uppi að hann óski ekki eftir þjónustu verjandans Pierre Blocquaux og tveggja annarra verjenda sem honum hafa verið útnefndir. Faðir 12 ára stúlku sem var meðal fórnarlamba Fournirets segir fjölskylduna ekki kæra sig um neinar útlistanir Fournirets á ódæðum hans. CNN greindi frá þessu.
Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Fleiri fréttir Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Sjá meira