Siggi Stormur heldur tryggð við Land Rover 27. mars 2008 14:28 „
Þetta eru svona viss vonbrigði. Þegar maður ekur um á Land Rover þá er maður svo sannfærður um að maður sé á eðal breskum bíl með allri þeirri sérvisku og sjarma sem því fylgir," sagði Sigurður Þ. Ragnarsson, þegar fregnir af kaupum hins indverska Tata Motors á Land Rover voru borin undir hann. Siggi Stormur er sem kunnugt er mikill aðdáandi Land Rover bíla, og fær sér nýjan slíkan á níu mánaða fresti. Hann hefur þó ekki áhyggjur af því að gæðum þeirra hraki þó eignarhaldið flytjist til. „Þeir eru að þessu til að græða pening og ætli þeir sér það mega þeir ekki slaka á gæðakröfunum," segir Siggi, sem vonar að passað verði upp á gæðastaðalinn á þessari fornfrægu bresku framleiðslu. Eignarhald á Land Rover hefur flakkað nokkuð í áranna rás. BMW keypti merkið af British Aerospace árið 1994 sem seldi það sex árum síðar til Ford, sem aftur seldi það áfram til Tata fyrir skemmstu. Hringlið hefur valdið Sigga nokkrum áhyggjum. „Ég hef haft vissar áhyggjur af þessu kennitöluflakki, en svaf þó vel," segir Siggi kíminn, og bætir við að það hafi verið mikill léttir þegar hann komst að því að díselvélin í bílnum væri bresk en ekki þýsk. Siggi reiknar fastlega með að skipta Land Rovernum sínum út fyrir annan sömu tegundar þegar hann er kominn á aldur. „Minn Land Rover tími er ekki liðin, enda búinn að eiga fimm slíka bíla. Ég er í skýjunum yfir Land Rover, það hefur aldrei verið framleiddur betri bíll. Ef fólk heldur öðru fram, eru einhver skrítin sjónarmið sem liggja þar að baki."
Mest lesið Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Lífið Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið Lífið Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Lífið Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Lífið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Lífið Hvað veistu um… Djúpavog? Lífið Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Menning Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Lífið Ein heitasta leikkona landsins á lausu Lífið Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Lífið Fleiri fréttir Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Lilja í Cosmo selur aðra perlu Kjartans Sjá meira