Mýrin endurgerð í Hollywood Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir skrifar 8. janúar 2008 12:57 Baltasar Kormákur og Arnaldur Indriðason. MYND/Frétt
Kvikmyndaframleiðandinn Overtures hefur tryggt sér réttinn að því að endurgera mynd Baltasars Kormáks, Mýrina. Baltasar mun taka þátt í gerð myndarinnar, en fyrirtækið fór fram á að hann yrði einn framleiðanda. Overtures er með dreifingarsamning við Paramount, sem er eitt stærsta kvikmyndafyrirtækið og dreifingaraðilinn í Hollywood. Þá sem þyrstir í að sjá hvaða stórleikari tekur að sér vandasamt hlutverk hins sviðjakjammsandi Erlends, gætu þó þurft að bíða örlítið. Baltasar segir að meðgöngutími slíkrar myndar geti verið allt frá einum til tveimur árum upp í tíu. ,,Ég man ekki nákvæmlega hvað rétturinn sem við sömdum um er lengi, en minnir að það séu 4-5 ár," segir Baltasar, en það er þá sá tími sem framleiðslufyrirtækið hefur til að koma myndinni á koppinn. Verkfall handritshöfunda í Hollywood hefur þó áhrif á þetta eins og annað, en Overtures heldur að sér höndum á meðan á því stendur, enda erfitt að endurgera handrit án handritshöfunda. Þeir hafa þó lagt fram lista með þeim handritshöfundum sem þeir vilja helst sjá í vinna að myndinni og segir Baltasar að á honum hafi enginn verið nema stærstu nöfnin í bransanum. „Þeir ætla sér stóra hluti með þetta, en maður veit auðvitað aldrei hvar þetta endar," segir Baltasar. Mýrin, sem er gerð eftir samnefndri skáldsögu Arnalds Indriðasonar, hefur gengið gríðarvel frá því hún var frumsýnd. Hún vann aðalverðlaunin á Karlovy Vary hátíðinni, og varð þar með fyrst íslenskra mynda til að vinna aðalverðalun á A-kvikmyndahátíð svokallaðri. En það eru stærstu hátíðirnar, á borð við þær í Cannes, Berlín, og Toronto kallaðar. Myndin hefur meðal annars verið seld til Bandaríkjanna, Bretlands, Þýskalands, Frakklands og allra Skandinavíulandanna.
Mest lesið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Rassaumhirða karla í sókn Lífið Hvað veistu um… árið 2010? Lífið Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar Lífið Stelpurnar í Kjólum og konfekti spá fyrir um úrslit HM Tíska og hönnun Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Lífið samstarf Áhugi leshringja svo mikill að Salka stækkar Lífið samstarf Fleiri fréttir Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ Sjá meira