Enski boltinn

Muamba til Bolton

Elvar Geir Magnússon skrifar
Fabrice Muamba.
Fabrice Muamba.

Bolton hefur keypt miðjumanninn Fabrice Muamba frá Birmingham og hefur hann gert fjögurra ára samning við félagið. Muamba er U21 árs landsliðsmaður og lék með Birmingham síðasta vetur.

Kaupverðið á Muamba er talið fimm milljónir punda en leikmaðurinn kemur úr unglingastarfi Arsenal. Gary Megson, stjóri Bolton, segir á vefsíðu Bolton að gleðiefni sé að fá Muamba í sínar raðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×