Heldur útgáfutónleika og stundar lyftingar 31. mars 2008 10:09 Björn Kristjjánsson, Borko
Tónlistarmaðurinn Borko heldur útgáfutónleika í Tjarnarbíói á fimmtudaginn til að fylgja eftir sinni fyrstu breiðskífu, Celebrating Life. Platan kom út í byrjun mars og hefur fengið lofsamlegar umsagnir hjá gagnrýnendum. Hún var sögð „fyrsta íslenska snilldarplatan á árinu 2008" í Fréttablaðinu og „í heild sinni hreinasta afbragð" í Morgunblaðinu. „Já, ég er ánægður með þessar viðtökur," segir Björn Kristjánsson, öðru nafni Borko. „Ég var að koma úr tónleikaferð um Evrópu og fann þar að efnið á Celebrating Life fékk góðan meðbyr. Fjölbreytni og húmor einkenna Celebrating Life ásamt sterkum melódíum í bland við tilraunakenndari hluti. „Það eru engin ákveðin lögmál í þessu, ég reyni þó yfirleitt að setja það saman sem mér þykir hljóma vel saman. Blásturshljóðfæri og elektróník fara til dæmis vel saman. Lögin eiga reyndar eftir að hljóma á allt annan hátt á tónleikunum heldur en á plötunni." Borko til halds og traust verður hljómsveit sem er skipuð þeim: Núma Þorkatli Thomassyni, Guðmundi Óskari Guðmundssyni, Róberti Sturlu Reynissyni, Örvari Þóreyjarsyni Smárasyni, Leifi Jónssyni og Ara Braga Kárasyni. „Þeir spiluðu flestir með mér á tónleikaferðinni og stóðu sig alveg eins og hetjur. Hljómsveitin er orðin ólgandi þétt og prógrammið vel slípað. Við erum í fínu formi eftir túrinn auk þess sem við stundum lyftingar reglulega og erum á leiðinni að gefa út Æfingabók strákanna í Borko. Ég efast ekki um að þetta á eftir að verða þrusu skemmtilegt, karlmannlegt og stútfullt af kynþokkafullum gítarmúvum". Húsið opnar klukkan 20:30 en tónleikarnir hefjast kl. 21 og hljómsveitin Seabear hitar upp. Miðaverð er 1200 krónur og forsala fer fram á midi.is.
Mest lesið „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Lífið Furðulegar Eddutilnefningar: Nína Dögg, Ólafur Darri og Edda sniðgengin Menning Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Lífið Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Lífið Hljóðblöndunin hörmung en Hebbi gamli bjargaði kvöldinu Gagnrýni Björk, Sigur Rós og ríflega þúsund aðrir krefjast sniðgöngu Tónlist Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Lífið Fagnaði sigri með bumbukossi Lífið „Hugur manns í þunglyndi er eineltishrotti“ Menning Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn Lífið Fleiri fréttir Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Sjá meira