Öryggisráðið fordæmir árásir fyrir botni Miðjarðarhafs 2. mars 2008 12:53
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur fordæmt bæði eldflaugaárásir Palestínumanna á Ísrael, og viðbrögð Ísraela við þeim árásum. Um eitthundrað manns hafa fallið í átökum Ísraela og Palestínumanna undanfarna daga. Mahmoud Abbas forseti Palestínu hefur hætt friðarviðræðum við Ísraela í kjölfar árásanna. Þetta eru hörðustu átök sem hafa orðið lengi og þau stefna friðarferlinu í verulega hættu. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hélt neyðarfund um málið í dag, að beiðni Palestínumanna og stuðningsríkja þeirra. Að honum loknum fordæmdi Ban Ki-moon framkvæmdastjóri samtakanna eldflaugaárásir Palestínumanna á Ísrael. Hann sagði að þær væru tilgangslaus hryðjuverk sem stefndu ísraelskum almenningi í hættu og færðu palestinskum almenningi aðeins þjáningar. Framkvæmdastjórinn sagði einnig að Ísraelar hefðu vissulega rétt til þess að verja sig. Hinsvegar væru viðbrögð þeirra ekki í neinu samræmi við tilefnið. Mikið mannfall hefði orðið meðal óbreyttra borgara og þar á meðal hefðu börn látið lífið. Ísraelar yrðu að fara að alþjóðalögum sem banna slíkar hóprefsingar. Ísraelar segja hinsvegar að þeir muni herða aðgerðir sínar á Gaza ef eitthvað verði. Ehud Barak, varnarmálaráðherra Ísraels sagði að hann hefði sent Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna skýr skilaboð. Ísraelar gætu einfaldlega ekki sætt sit við að sitja aðgerðarlausir undir eldflaugahríð frá Gaza ströndinni. Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna tilkynnti svo rétt fyrir hádegi að hann væri hættur friðarviðræðum við Ísraela vegna árása þeirra á Gaza.
Mest lesið Tvennt flutt á sjúkrahús eftir árekstur við Eyrarbakka Innlent Sextíu flugferðum aflýst vegna veðurs Innlent „Finnst allt benda til þess að þetta sé að lognast út af“ Innlent Segir Írani ekki lengur geta auðgað úran Erlent „Eins og við séum að fara ansi mörg ár aftur í tímann“ Innlent Óttast að Smalaholtsskógur verði Garðabæ að bráð Innlent Afsalar sér verðlaunum fyrir Sykurbað Innlent Dómur staðfestur yfir árásarmanni Tinnu Innlent Þingheimur hló að þýðingu Daða Más Innlent Bandarískur stjúpsonur El Mencho fékk krúnuna Erlent Fleiri fréttir Segir Írani ekki lengur geta auðgað úran Bandarískur stjúpsonur El Mencho fékk krúnuna Hittler mætir Zielenski í frönskum bæjarstjóraslag Útskrifuð fyrir fimm mánuðum en neitar að fara Vilja 25 billjónir: „Það þarf peninga til að drepa vonda kalla“ Tilbúnir til að sprengja flugbrautir á Grænlandi Farage í klandri vegna myndbanda fyrir nýnasista og öfgamenn Banksy opinberaður, enn einu sinni Fjárframlög til BBC World Service aukin vegna upplýsingaóreiðu Black Cube sakað um njósnir fyrir kosningar í Slóveníu Viðvörun gefin út á Bretlandseyjum vegna heilahimnubólgu Trump hótar umfangsmiklum árásum á olíuinnviði Íran Olíuvinnslur rýmdar eftir árásir á eitt stærsta gassvæði heims Reyna að rjúfa hljóðmúrinn án láta Sænskur ríkisborgari tekinn af lífi í Íran Säpo varar við aukinni ógn frá Rússlandi Krefjast rúmlega sjö ára fangelsis yfir glæpaprinsinum Felldu enn einn ráðherrann: Reyna að ryðja leiðina fyrir Írani en gætu eflt herinn Tillögu um lögleiðingu dánaraðstoðar hafnað í Skotlandi Skárri staða í Álasundi Hóta hefndum fyrir drápið á Larijani Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Geti ekki starfað undir Bandaríkjaforseta með góðri samvisku Ráðherra og þingforseti segja sig úr flokknum Segir ekkert hérað Rússlands öruggt lengur „Við þurfum ekki hjálp frá neinum!“ Stjórnvöld sögð hylma yfir hvarf hundraða á Miðjarðarhafi Fjögur hundruð fíklar sagðir liggja í valnum eftir árásir Pakistana Segjast hafa sent tvo háttsetta Írani til „dýpstu kima helvítis“ Sjá meira