Þinghúsi í Haag lokað í varúðarskyni vegna Kóranmyndar 28. mars 2008 10:46 Geert Wilders hefur vakið mikið umtal í Hollandi fyrir mynd sína um Kóraninn sem hann lýsir sem fasistariti. MYND/AP
Þinghúsinu í Haag í Hollandi hefur verið lokað í varúðarskyni eftir að umdeild mynd eftir hollenska stjórnmálamanninn Geert Wilders um Kóraninn var sett á Netið í gær. Þá funduðu innflytjendaráðherra og dómsmálaráðherra landsins með fulltrúum múslíma í landinu vegna málsins í morgun. Eins og fram hefur komið í fréttum óttast hollensk stjórnvöld að myndin veki reiði meðal múslíma bæði í Hollandi og víðar um heiminn enda er ráðist harkalega gegn Kóraninum í myndinni. Allt hefur þó verið með kyrrum kjörum í landinu í dag. Myndin sem um ræðir nefnist Fitna og hefur meðal annars að geyma myndir af hryðjverkaárásunum í New York 11. september 2001 og á Spáni í mars 2003 og þær settar í samhengi við texta í Kóraninum. Þá er varað við vaxandi fjölda múslíma í Hollandi og Evrópu alllri. Hollensk stjórnvöld hafa gagnrýnt myndina og segja hana ekki endurspegla viðhorf þeirra. Þá stendur yfir rannsókn á því hvort Wilders, sem er situr á hollenska þinginu, hafi brotið gegn lögum með birtingu myndarinnar. Ella Vogelaar, innflytjendaráðherra Hollands, sagði eftir fund með fulltrúum múslíma í landinu að þeir myndu ekki falla í gildru Wilders en hann reyndi að auka á ótta og óöryggi í landinu. Þá sagði hún Samtök múslíma hafa lýst því yfir að trúrarleiðtogar múslíma í Hollandi myndu hvetja söfnuði sína til að halda ró sinni vegna málsins.
Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Erlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Bein útsending: Kynna þingmálaskrá vetrarins Innlent Allt að átján stiga hiti í dag Veður Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Erlent Fleiri fréttir Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Sjá meira