Rétt framkvæmd samninga geti leitt til lækkunar vaxta og verðbólgu 17. febrúar 2008 21:35 Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. MYND/STöð 2
Samtök atvinnulífsins segja mikilvægt að fyrirtæki geri ekki aðrar launabreytingar nú en þær sem ákveðnar eru í samningum sem skrifað var undir í kvöld. Segja samtökin að með réttri framkvæmd kjarasamninga og framlagi stjórnvalda séu góðar horfur á að starfskilyrði atvinnulífsins batni, vextir lækki og verðbólga minnki og raunverulegar kjarabætur verði tryggðar. Fram kemur í tilkynningu frá SA vegna hinna nýju samninga að kauptaxtar verkafólks hækki um 18 þúsund krónur á mánuði og iðnaðarmanna um 21 þúsund. Samningarnir fela í sér launaþróunartryggingu sem er 5,5 prósent sem virkar þannig að hafi laun ekki hækkað sem því nemur frá 2. janúar 2007 hækka þau nú um það sem á vantar hjá þeim sem hafa verið í starfi þennan tíma. Laun sem hafa hækkað um 5,5 prósent eða meira hækka ekki nú. Í samningunum felist því engar almennar flatar launahækkanir. ,,Meginatriði þessara samninga er að forgangsraða því svigrúmi sem atvinnulífið hefur til launahækkana til þeirra sem greidd eru laun samkvæmt lægstu kauptöxtum og til þeirra sem setið hafa eftir í launaskriði. Með samningunum skapast raunhæfur möguleiki á að ná niður verðbólgu og að launa- og verðbreytingar verði almennt í sama farvegi og í nágrannalöndum okkar," segja Samtök atvinnulífsins. Samtökin benda á að launakostnaður fyrirtækja aukist mismikið með hinum nýju kjarasamningum. Breytingarnar séu allt frá því að verða litlar sem engar í að mælast í drjúgum hækkunum þegar allra lægstu hugsanlegu laun eru skoðuð. Forgangsröðunin skapi grunn að nýju jafnvægi á vinnumarkaðnum og í atvinnulífinu sem sé forsenda stöðugleika og hjöðnun verðbólgunnar. Þá segja samtökin að hækkanir samkvæmt kjarasamningum séu mjög sambærilegar við niðurstöður samninga 22. júní 2006. ,,Verðbólgan á síðari hluta árs 2006 lækkaði mjög í kjölfar þeirra samninga og á síðari árshelmingi var hraði verðbólgunnar kominn niður fyrir 3%. Verðbólgan fór svo vaxandi á nýjan leik þegar kom fram á árið 2007 fyrst og fremst vegna hækkunar íbúðaverðs. Engin ástæða er til annars en álykta að verðbólguhjöðnun í framhaldi af samningunum núna verði svipuð og á síðari hluta árs 2006.," segir í tilkynningu SA.
Mest lesið „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Innlent María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Innlent Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Innlent Bandaríkjamenn vilji að stríðinu verði lokið í júní Erlent Berglind rétt marði Þórhall Innlent Fleiri fréttir „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi Sjá meira