Persónuafsláttur hækkar um 7 þúsund krónur 17. febrúar 2008 19:32 Geir Haarde og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir kynntu viljayfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í dag. Mynd/ Stöð 2
Persónuafsláttur hækkar um 7 þúsund krónur á næstu þremur árum, umfram almenna verðuppfærslu. Skerðingarmörk barnabóta verða hækkuð og tekjuskattur fyrirtækja verður lækkaður í 15%. Þetta er meðal þess sem kemur fram í viljayfirlýsingu sem ríkisstjórnin hefur samþykkt vegna kjarasamninga sem til stendur að undirrita í kvöld. Persónuafsláttur hækkar um 7 þúsund krónur á næstu þremur árum, umfram almenna verðuppfærslu. Árið 2009 hækkar hann um 2.000 krónur, árið 2010 um 2.000 krónur og árið 2011 um 3.000 krónur. Skerðingarmörk barnabóta verða hækkuð úr 100 þúsund krónum á mánuði fyrir einstaklinga í 120 þúsund krónur árið 2008 og 150 þúsund krónur árið 2009. Sambærilegar fjárhæðir fyrir hjón hækka úr 200 þúsund krónum í 240 þúsund krónur árið 2008 og 300 þúsund árið 2009. Tekjuskerðingarhlutföll vegna annars og þriðja barns verði jafnframt lækkuð um 1% árið 2008. Þá mun ríkisstjórnin mun beita sér fyrir frekari aðgerðum til lækkunar vöruverðs, einkum á matvælum. Sérstaklega verða skoðaðar frekari lækkanir á tollum og vörugjöldum. Loks verður tekjuskattur fyrirtækja lækkaður úr 18% í 15% frá og með tekjuárinu 2008 sem kemur til framkvæmda álagningarárið 2009. Þá mun ríkisstjórnin vinna að stefnumótun í húsnæðismálum þar sem skyldur hins opinbera verða skilgreindar og verka- og kostnaðarskipting ríkis og sveitarfélaga endurskoðuð með jafnræði milli búsetuforma og einstaklingsbundinn stuðning að leiðarljósi. Jafnframt mun ríkisstjórnin taka til endurskoðunar fyrirkomulag vaxtabóta og húsaleigubóta í samráði við aðila vinnumarkaðarins o.fl.
Mest lesið Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Innlent „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Innlent Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Innlent Fleiri fréttir Leita enn að meintum geranda í stungumáli Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Sjá meira