Lífið

Pete Doherty á von á barni

Föðurlegur?
Föðurlegur?
Ofurrokkarinn og vandræðabarnið Pete Doherty er að verða pabbi. Að minnsta kosti ef marka má orð Lauru McLaughlin, tvítugrar guðdóttur Sir Alex Fergusson.

Laura, sem vinir hennar kalla Lolu, er fyrirmyndarnemandi og nýbúin að fá inngöngu í lagadeild Harvard háskóla. Hún er komin þrjá mánuði á leið og sagðist í samtali við breska blaðið News of the World að hún væri sannfærð um að Pete væri pabbinn. Hún hafi nefnilega verið hrein mey þegar rokkarinn dró hana á tálar í október.

Hún lenti óvænt inn á sjúkrahúsi í lok desember, og komst þá að því að hún væri ófrísk. Hún hringdi beint í Pete, en hann mun hafa tekið tíðindunum fálega.

Talsmaður rokkarans sagði við blaðið að Pete hefði enga hugmynd hver stúlkan væri, og þaðan af síður ætti hann nokkuð í barninu.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.