Varaþingmaður varð kjaftstopp í fyrsta skipti á ævinni Breki Logason skrifar 17. apríl 2008 14:59 Guðný Hrund Karlsdóttir varaþingmaður varð ekki kjafstopp á þessum fundi Samfylkingarinnar.
Guðný Hrund Karlsdóttir varaþingmaður Samfylkingarinnar hélt sína fyrstu ræðu í þinginu í gær. Hún vill þó frekar tala um ræðuleysi því hún varð alveg kjafstopp í umræðum um niðurstöður vorralls Hafrannsóknarstofnunnar. „Ég fer þarna upp með punkta enda vön að flytja ræður en svo varð ég bara kjaftstopp en það hefur bara aldrei gerst áður," segir Guðný Hrund um uppákomuna sem hefur vakið þónokkra athygli í dag. Myndband af ræðu Guðnýjar síðan í gær hefur gengið manna á milli en Guðný segist hafa fengið töluverða samúð frá sínum kollegum í þinginu. Hún tekur þessu þó létt en viðurkennir að uppákoman hafi verið nokkuð óþægileg. „Líka vegna þess að þetta var fyrsta ræðan mín í þinginu. Fjölskyldunni finnst hinsvegar gaman að því að sjá mig í fyrsta skipti kjafstopp og það í beinni útsendingu," segir Guðný sem fór ekki upp í pontu með skrifaða ræðu. Í samtölum sínum við reyndari þingmenn í dag hefur Guðný komist að því að mælt er með að fólk fari með skrifaða ræðu upp í pontu í fyrsta skipti. Eftirá að hyggja hefði það líklega verið heppilegra. Hún segir einnig svekkjandi að hafa ekki komið sínum sjónarmiðum á framfæri því hún hafi mikla skoðun á málinu. Guðný ætlar hinsvegar ekki að láta þessa uppákomu hafa áhrif á sig en í dag er síðasti dagur hennar sem varaþingmaður. „Ég er nú með tilbúna ræðu og ætla að skjóta mér inn í umræðu um Lánasjóð Íslenskra námsmanna núna jafnvel á eftir. Þetta er nú engin tímamótaræða en vonandi hjálpar mér að komast betur af stað, þar sem ég missteig mig svona í gær." Þess má geta að Guðný er af þingmannaættum því farið hennar, Karl Steinar Guðnason, sat lengi þingi fyrir Alþýðuflokkinn, eða frá árinu 1979-1987. Hérna er hægt er að sjá ræðu Guðnýjar síðan í gær.
Mest lesið „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Lífið Furðulegar Eddutilnefningar: Nína Dögg, Ólafur Darri og Edda sniðgengin Menning Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Lífið Hljóðblöndunin hörmung en Hebbi gamli bjargaði kvöldinu Gagnrýni Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Lífið Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Lífið Björk, Sigur Rós og ríflega þúsund aðrir krefjast sniðgöngu Tónlist Fagnaði sigri með bumbukossi Lífið Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn Lífið Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Lífið Fleiri fréttir Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Sjá meira