Býst við mótmælum í Indónesíu vegna Múhameðsteikninga 13. febrúar 2008 14:03 Mikil mótmælaalda fór um hinn íslamska heim eftir að Múhameðsmyndirnar voru birtar fyrir um tveimur árum. MYND/AP
Blásið verður til mótmæla í Indónesíu vegna þess að dönsk dagblöð birtu aftur skopmyndir af Múhameð spámanni sem ollu mikilli reiði meðal múslíma fyrir um tveimur árum. Þetta segir talsmaður 50 milljóna manna íslamskra samtaka í landinu í samtali við norska blaðið Aftenposten í dag. Jyllands Posten, Politiken og Berlingske Tidende birtu í morgun teikningu Kurt Westergaard af Múhameð með sprengjutúrban. Var það gert í kjölfar frétta af því að danska lögreglan hefði komið í veg fyrir áform manna að myrða Westergaard. Syaiful Bahri Anshori, talsmaður samtakanna Nahdlatul Ulama, stærstu íslömsku samtakanna í Indónesíu, segir mikla reiði vegna birtingarinnar. „Samtök okkar beita ekki ofbeldi og við mótmælum því að fólk brenni fána og standi fyrir ofbeldisfullum mótmælum. En það eru önnur samtök sem munu beita slíku," segir Anshori í samtali við Aftenposten. Hann segist hins vegar munu skrifa bréf til danska sendiráðsins í Djakarta til að mótmæla gerningi danskra miðla. Þá áformar hann einnig að senda bréf til Sameinuðu þjóðanna. Indónesía er fjölmennasta múslímaríki í heimi en þar búa yfir 200 milljónir manna.
Mest lesið Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Innlent „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Leita enn að geranda í stungumáli Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Innlent Fleiri fréttir Japanir halda í kjörklefana Bandaríkjamenn vilji að stríðinu verði lokið í júní Birtu ekki baulið Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Höfnuðu kröfum Bandaríkjamanna Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Neytandi njósnakláms varð fórnarlamb Tugir látnir eftir sprengjuárás í Islamabad Flúði fílahjörð í kjaftinn á krókódíl Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Hik komið á lýtalækna í kjölfar bótadóms vegna kynleiðréttingar Rússar í vandræðum með netið í Úkraínu Umferðin í klessu vegna mikillar snjókomu í Danmörku Hátt settur leyniþjónustumaður skotinn og særður í Moskvu Fór í flugtak af akbraut og hafnaði úti á grasi Bandaríkjamenn og Rússar taka upp formleg samskipti á ný Hvetur til allsherjarverkfalls ef Trump reynir að stela þingkosningunum Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Segir 55 þúsund hermenn fallna en margra sé saknað Vara við uppgangi Íslamska ríkisins Sjónvarpskona biður mannræningja um sönnun þess að móðir hennar lifi enn Demókratar unnu orrustu í kjördæmastríðinu Vildi ekki hitta miðvinstriþingmenn í heimsókn til Washington Sendi Trump tóninn vegna Taívan Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Segir brýnt að semja um áframhaldandi fækkun kjarnavopna Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Segist sjá eftir hverri mínútu með Epstein Sjá meira