Lífið

Beyonce og Jay-Z pússa sig saman

Þær sögur ganga fjöllum hærra að Jay-Z og Beyonce hafi gift sig í París fyrr í mánuðinum. Parið var á ferðalagi í Frakklandi til að halda upp á afmæli Jay-Z og kom heim með samskonar húðflúr á baugfingri.

Haft er eftir vinum parsins að þau hafi viljað forðast alla paparassana sem fylgja þeim í hvert fótmál og því ákveðið að nýta tækifærið í fríinu og láta pússa sig saman við litla og lágstemmda athöfn.

Nágrannar parsins í New York sögðu fyrir nokkrum vikum að parið hefði trúlofað sig. Þau hafa verið saman síðan árið 2002.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.