Hvað gerði Jón Sigurðsson í dag? Breki Logason skrifar 5. desember 2007 16:15 Jón Sigurðsson, Jón Sigurðsson, Jón Sigurðsson, Jón Sigurðsson og Jón Sigurðsson.
Þeir eru um 400 sem bera nafnið Jón Sigurðsson í þjóðskrá okkar íslendinga. Ef nafninu er flett upp í símaskránni fyllir það heilar þrjár síður. Dagurinn í dag var merkilegur fyrir nokkra þeirra, misjafnlega þó. Frá því að hinn eini sanni mælti „Vér mótmælum allir" forðum daga hafi margir nafnar hans látið til sín taka í þjóðfélaginu. Vísir fór yfir daginn hjá fjórum frægustu Jónum Sigurðssonum þessa lands.FL-JónJón Sigurðsson forstjóri FL GroupDagurinn hefur verið viðburðarríkur hjá Jóni Sigurðssyni í FL Group. Þetta var hans fyrsti dagur sem forstjóri félagsins og varð hann þar með yngsti forstjórinn í Kauphöllinni. FL-Jón byrjaði daginn á því að gera grein fyrir stöðu FL Group á fundi með svokölluðum "markaðsaðilum" og var síðan mættur í hádegisviðtalið á Stöð 2 þar sem hann stóð sig með prýði. Jón á mikið verk fyrir höndum en fyrsti dagurinn lofar góðu. Banka-JónJón Sigurðsson fyrrverandi ráðherraJón Sigurðsson fyrrverandi iðnaðarráðherra og bankastjóri Norræna fjárfestingarbankans átti einnig viðburðaríkan dag. Bankaráð Þróunarbanka Evrópuráðsins valdi hann í þriggja manna ráð reyndra einstaklinga úr banka- og fjármálalífi Evrópu sem gera mun úttekt á starfsemi bankans og tillögur til úrbóta. Banka-Jón hefur verið áberandi bæði á pólitískasviðinu og í viðskiptalífinu í mörg ár og það er mikil viðurkenning fyrir hann að vera valinn í þessa nefnd. Framsóknar-JónJón Sigurðsson fyrrum formaður Framsóknarflokksins„Árangur áfram - ekkert stopp," voru einkunnarorð Framsóknar-Jóns í síðustu alþingiskosningum. Þar leiddi hann lista Framsóknarmanna en hann hafði tekið við af Halldóri Ásgrímssyni sem forsætisráðherra skömmu fyrir kosningar. Eftir afleitt gengi flokksins vék hann sem formaður flokksins og snéri sér að kennslu í Háskólanum í Reykjavík. „Dagurinn hjá mér var ágætur. Ég var að undirbúa kennslu en annars er ég í ýmsum verkefnum hjá skólanum," sagði Framsóknar-Jón sem kennir við viðskiptadeild skólans. Idol-JónJón Sigurðsson IdolstjarnaViðskiptadeild Háskólans í Reykjavík hefur annan nafntogaðan Jón Sigurðsson innanborðs. „Já ég er á fullu í prófum enda byrjaði ég nám í viðskiptafræði í HR nú í haust," segir Jón Sigurðsson sem vann hug og hjörtu landsmanna í fyrstu Idol keppni okkar íslendinga. Hann er þó ekki búinn að gefa sönginn upp á bátinn og segist stunda hann í hjáverkum þó söngurinn sé í lægð þessa dagana. Jón tók nám í mannauðsstjórnun við Háskóla Íslands en ætlar nú að klára viðskiptafræðina með því. „Strákurinn minn hefur verið veikur þannig að ég var með hann í rannsóknum upp á spítala í morgun. Síðan var það bara próflestur eftir hádegið," sagði Idol-Jón sem ætlar sér að klára námið sem fyrst.
Mest lesið Emma Watson svipt ökuleyfinu Lífið Yngsti gusumeistari landsins Lífið Birta og Króli eiga von á dreng Lífið Íslensk hátíska úr fiskileðri slær í gegn í Vogue Tíska og hönnun „Þú stýrir þínum rokkstjörnulífsstíl“ Lífið „Kókaín hefur tekið mig aftur og aftur til helvítis“ Lífið Væri teiknimyndapersóna í fullkomnum heimi Tíska og hönnun „Þetta er miklu stærra en fólk gerir sér grein fyrir“ Lífið Sumarlegt og ofurhollt kínóasalat að hætti Jönu Lífið Sjarmerandi raðhús í 105 Lífið Fleiri fréttir Birta og Króli eiga von á dreng Sumarlegt og ofurhollt kínóasalat að hætti Jönu Emma Watson svipt ökuleyfinu Yngsti gusumeistari landsins Sjarmerandi raðhús í 105 Sögufrægur gítar Stones fannst hálfri öld eftir að honum var stolið „Þetta er miklu stærra en fólk gerir sér grein fyrir“ „Óljósir, fallegir og stundum óþægilegir hlutir“ Óútgefinni tónlist Beyoncé stolið úr bíl danshöfundar „Þú stýrir þínum rokkstjörnulífsstíl“ „Yndislegir vinir gáfu okkur saman í plötubúð“ Sögulegt sveitaball í hundrað ár Boxari selur íbúð með heitum potti og Esju útsýni Telur að 511 kílómetra hlaupið styrki hlauparann „Kókaín hefur tekið mig aftur og aftur til helvítis“ Ómissandi gönguleiðir sem þú verður að prófa Stjörnulífið: „Engar áhyggjur við erum ekki skilin“ Riddarar kærleikans í hringferð um landið Endaði á geðdeild eftir notkun MDMA í sálfræðimeðferð Reykvíkingur ársins tileinkar samstarfsfólki útnefninguna Nágrannar kveðja sjónvarpsskjáinn „Það verður erfitt að trúa því að lífið muni einhvern tímann leiða eitthvað gott af sér” Krakkatían: Narnía, krónprins og sundlaugar Klay Thompson og Megan Thee Stallion nýtt par Börnin læra að sauma út, baka og elda í Hússtjórnarskólanum „Auðvitað væri ég til í að ná enn lengra“ Fréttatía vikunnar: Kjarnorkukafbátur, málþóf og magapína Hneykslast á freðnum Bieber dansa við Sexyy Redd og kyssa hana á ennið Ætlar að ná styrk í fingurna til að geta greitt dótturinni Ragga Holm og Elma trúlofaðar Sjá meira