Sorg og sársauki eftir mikið brunaslys Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar 8. júní 2007 18:56
Sautján ára gamall Hafnfirðingur sem fékk þriðja stigs bruna á 60 prósent líkamans eftir sjóðandi sturtu, segist vonast til að tilfelli eins og hans verði til að bjarga öðrum frá því sama. Ár er liðið frá slysinu og hann segir sorgina og sársaukann hafa verið óbærilegan. Hjörtur Kristjánsson var að undirbúa sinn fyrsta vinnudag í sumarvinnu hjá Bónus þegar hann varð undir sjóðandi heitri sturtu. Foreldrar hans vöknuðu við læti af baðherberginu og komu að honum þar. Hjörtur fór í tvær stórar aðgerðir strax á eftir og var haldið sofandi í öndunarvél í 34 daga. Þegar hann vaknaði mundi hann ekkert hvað hafði gerst þar sem hann fékk flogakast á sama tíma og hann steig í sturtuna. Hjörtur var í toppformi fyrir slysið, en fór niður undir anorexíumörk og var einungis 47 kíló þegar hann var léttastur. Hann svaf illa og átti erfitt með að halda næringu niðri. Það eina sem hann gat gert var að ýta á takka. Hann gat ekki einu sinni borðað.Í tæpa fjóra mánuði var Hjörtur á spítala. Hann segir starfsfólk hafa reynst vel en gott hafi verið að komast úr bakteríudrepandi herberginu á Borgarspítalanum þar sem enginn mátti koma inn nema í sérstökum búningi.Þrátt fyrir sorgina og sársaukann síðasta árið segir Hjörtur að hann líti jákvætt á þessa lífsreynslu og hann muni læra af henni. Og framtíðaráform eru ekki ákveðin.Húð Hjartar mun aldrei verða eins og hún var áður og hann mun bera ör um allan líkamann. Læknar segja að tíminn muni leiða í ljós hversu vel húðin nær að gróa, en það komi fyrst í ljós eftir rúmt ár. Þangað til á Hjörtur eftir að fara í nokkrar minniháttar aðgerðir.
Mest lesið Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Erlent Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Innlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Erlent Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Innlent Fleiri fréttir Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Sjá meira