Innlent

Börðu mann á sjómannadansleik

Tveir menn voru í Héraðsdómi Austurlands í dag sakfelldir fyrir líkamsárás á sjómannadansleik á Höfn í Hornafirði í sumar.

Þeim var gefið að sök að hafa fyrirvaralaust ráðist á annan mann og slegið hann í höfuðið og hrint honum í gólfið og gengið þar í skrokk á honum þannig að hann hlaut meðal annars skurð og allstórt mar á höfði. Mennirnir játuðu skýlaust brot sín fyrir dóminum og samþykktu að greiða fórnarlambi sínu 200 þúsund krónur í skaðabætur vegna árásarinnar.

Annar mannanna hlaut 45 daga fangelsisdóm en hinn hlaut fjögurra mánaða dóm þar sem hann rauf skilorð fyrri dóms með árásinni. Dómurinn leit meðal annars til þess að árásin var með öllu tilefnislaus og að mennirnir hefðu ráðist á fórnarlamb sitt saman. Ákveðið var að skilorðsbinda dómana yfir báðum til þriggja á ára vegna þess hve ungir árásarmennirnir eru.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×