Innlent

Ánægður með minnkandi dópneyslu í fangelsunum

Valtýr Sigurðsson, forstjóri Fangelsismálastofnunar.
Valtýr Sigurðsson, forstjóri Fangelsismálastofnunar. MYND/Heiða

Nýlega var framkvæmd allsherjar úttekt á fíkniefna- og lyfjaneyslu fanga hér á landi. Valtýr Sigurðsson, forstjóri Fangelsismálastofnunar, segist afar ánægður með niðurstöðurnar sem sýni að málin þokist í rétta átt. Í Hegningarhúsinu á Skólavörðustíg og í fangelsunum í Kópavogi og á Kvíabryggju reyndist enginn fangi hafa neytt fíkniefna eða lyfja sem bönnuð eru innan veggja fangelsisins. Ástandið er þó ekki eins gott á Litla Hrauni.

Á Litla Hrauni höfðu sjötíu og eitt prósent fanga neytt fíkniefna eða bannaðra lyfja. Valtýr segir að ástæður fyrir því að ástandið á Hrauninu sé svo slæmt séu margar. Flókin samsetning fanga og erfiðar aðstæður geri þetta að verkum. „En við erum að vinna í því að bæta ástandið eins og við getum," segir Valtýr. Í næsta mánuðu verður tekinn í notkun sérstakur meðferðargangur á Litla Hrauni.

Að sögn Valtýs er meðferðargangurinn að mörgu leyti óhentugur, hann sé of stór og erfitt sé að stúka hann niður en þar verða ellefu fangaklefar. Hann segir afar brýnt að koma meðferðarúrræðum innan veggja fangelsana í réttan farveg en nýtt fangelsi á Hólmsheiði mun bæta verulega úr vandanum. Hólmsheiðarfangelsið verður sérstaklega hannað með það í huga að vera móttöku, varðhalds og meðferðarfangelsi. „Það hyllir því í að þessu verði kippt í liðinn," segir Valtýr, sen samkvæmt núverandi áætlunum er gert ráð fyrir því að fangelsið á Hólmsheiði verði tekið í notkun árið 2010.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×