Lífið

Tarantino áramótateitið verður á Rex

Quentin Tarantino og Eli Roth verða á Rex.
Quentin Tarantino og Eli Roth verða á Rex.

Quentin Tarantino er búinn að tryggja sér skemmtistaðinn Rex í Austurstræti fyrir gamlárskvöld. Samkvæmt heimildum Vísis hefur hann fengið ungan mann að nafni Roman Olney, sem er klúbbeigandi í London, til þess að sjá um að skipuleggja veisluna.

Heyrst hefur að boðið verði upp á löðrandi kampavín og munu föngulegar konur verða áberandi á staðnum. Þá þykir líklegt að einhverjir félagar Tarantinos úr kvikmyndabransanum komi til landsins til að taka þátt í áramótagleðinni með honum.

Tarantino hélt einnig teiti á Rex þegar hann kom hingað fyrir tveimur árum og ljóst er að hann hefur ekki verið svikinn af þeirri reynslu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.