Á leiðinni til Texas 9. mars 2007 09:45 Hljómsveitin Lada Sport spilar á Grandrokki í kvöld ásamt Mammút.
Hljómsveitirnar Lada Sport og Mammút munu spila á tónleikahátíðinni South by South West í Texas á næstunni. Til að hita upp fyrir ferðina og til að fá hjálp við fjármögnun ætla sveitirnar að halda tónleika á Grandrokki í kvöld. Tónleikarnir í Texas verða þeir fyrstu sem Lada Sport heldur erlendis. „Fyrir okkur er þetta frábært. Einn meðlimur er meira að segja að fara í fyrsta skipti frá Íslandi, þannig að fyrsta utanlandsferðin hans er tónleikaferð,“ segir trommari Lödu Sport, Haraldur Leví Gunnarsson. Upptökur eru hafnar á fyrstu stóru plötu sveitarinnar og er hún væntanleg í búðir í júní. „Tónleikarnir hérna heima verða síðustu tónleikarnir okkar á Íslandi þangað til platan kemur út en í sumar ætlum við að spila á fullu. Síðan förum við vonandi út aftur, kannski í haust,“ segir Haraldur. Miðaverð á tónleikana í kvöld er 500 krónur og opnar húsið klukkan 23.00.
Mest lesið Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Lífið Myndaveisla: Samstaða og stolt í algleymingi í Gleðigöngunni Lífið Með sex sjúkdóma og ólæknandi mein en lætur ekkert stoppa sig Lífið Krakkatían: Afmælistónleikar, maraþon og bílpróf Lífið Nígerísk hjón reisa glerkastala í Kjós og flytja inn tonn af blómum til að gifta sig aftur Lífið Ungt fólk setur vínbændur í erfiða stöðu Matur Nígerískt stjörnubrúðkaup í Hallgrímskirkju Lífið Hvað er Labubu og hvers vegna eru allir að missa sig yfir því? Tíska og hönnun Myndaveisla: Tröllatrukkur og Rolls Royce á svæðinu þegar hjónin gengu út Lífið Hommar, lesbíur, trans fólk og fleiri sameinast í gleðinni Lífið Fleiri fréttir „Öll dýrin í skóginum voru vinir“ Úr kjallaranum hjá mömmu yfir á stóra sviðið Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Borgin býður í tívolíveislu Dylan leggur blátt símabann á tónleikagesti „Gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi“ Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ „Svo leiðinlegt að pæla hvað öðru fólki finnst“ Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Sjá meira