Lífið

Hlómsveitin Bermuda kaupir auglýsingu fyrir Skaupið

Breki Logason skrifar
Hljómsveitin Bermuda
Hljómsveitin Bermuda

„Það var maður sem sá okkur spila á tónleikum og leyst svona vel á. Hann spurði síðan hvort hann gæti ekki aðstoðað og við fengum hann til þess að kaupa sjónvarpsauglýsingu handa okkur," segir Gunnar Þortseinsson trommuleikari hljómsveitarinnar Bermuda.

Hljómsveitin verður með eina af fjórum síðustu auglýsingum fyrir áramótaskaupið í kvöld en það er eigandi Flúðasveppa sem keypti auglýsinguna. „Við fengum síðan hugmynd um að fá hana Ellý Ármanns með okkur í lið og hún var til í þetta. Hún leikur því aðalhlutverkið í auglýsingunni," segir Gunnar en Ellý mun auglýsa nýjustu plötu sveitarinnar sem ber heitið Nýr dagur.

Auglýsingin er 18 sekúndna löng og segist Gunnar ekki hafa hugmynd um hvað hún kosti. „Hann fær bara reikninginn," segir Gunnar og hlær.

Sveitin byggði sér stúdíó ekki alls fyrir löngu og tók upp nokkrar útvarpsauglýsingar til að kynna plötuna. Þar ljá nokkrir landsfrægir einstaklingar rödd sína en Gunnar er ófáanlegur til að upplýsa um hverjir það eru.

Bermuda heldur svakalegt ball í Breiðinni á Akranesi í kvöld þar sem glænýtt ljósakerfi verður frumsýnt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.