Lífið

Stórstjörnunýársfagnaður á Loftleiðum

Sveppi er veislustjóri á nýársfagnaðinum
Sveppi er veislustjóri á nýársfagnaðinum

Að kvöldi nýársdags hefur skapast hefð fyrir því lyfta sér upp og fagna nýju ári. Á því verður engin breyting annað kvöld.

Á hótel Loftleiðum hefur verið haldið einkasamkvæmi síðastliðin sex ár og þar hafa sést gestir eins og Eiður Smári Guðjohnsen og Arnór faðir hans. Einnig hefur Ragnhildur Gísladóttir, Friðrik Karlsson gítarleikari Mezzoforte, Róbert Spano lögfræðingur og Þórður Friðjónsson forstjóri Kauphallarinnar látið sjá sig.

Listinn virðist frekar þéttur því samkvæmt heimildum Vísis er Eyþór Arnalds einnig fastagestur í boðunum en einnig Steingrímur Wernerson fjárfestir. Jón Arnar kenndur við Habitat og tvíburarbræðurnir Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir hafa látið sjá sig í veislunni.

Ekki fæst þó uppgefið hverjir eru á gestalistanum í ár en vitað er að þeir félagar Sveppi og Simmi verða veislustjórar. Boðið er uppá hótelherbergi og glæsilegan fimm rétta matseðil en ekkert er sparað til í skemmtiatriðunum. Stefán Hilmarsson, Helgi Björnsson, Einar Ágúst og stórhljómsveit Vignis Snæs Vigfússonar munu skemmta gestum þetta árið.

Uppselt er á fagnaðinn og hafa menn tippað á að leikstjórarnir og vinirnir Eli Roth og Quentin Tarantino láti sjá sig með stórvininum Eyþór Guðjónssyni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.