Lífið

Lindsay Lohan verður verðlaunuð

Lindsay Lohan á von á verðlaunum.
Lindsay Lohan á von á verðlaunum.

Lindsay Lohan á von á verðlaunum. Það vekur sérstaka athygli að verðlaunin sem hún fær eru ekki veitt fyrir metfjölda áfengismeðferða heldur fyrir kvikmyndaleik. Lohan verður nefnilega verðlaunuð á Capri kvikmyndahátíðinni næstkomandi föstudag. Hún er þegar mætt til Capri á Ítalíu, þar sem hún spókar sig á götunum og ráfar um búðir. „Það er okkur sannur heiður að fá Lindsay Lohan á Capri hátíðina," er haft eftir Pascal Vicedomini, framkvæmdastjóra hátíðarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.