Lífið

Angelina Jolie elskar kynlífssenur

sev skrifar
MYND/Getty
Leikonan kynþokkafulla Angelina Jolie, ætlar ekkert að láta það að vera betri helmingur fallegasta pars í heimi trufla sig í því sem hún hefur gaman af. Og leikkonan veit fátt skemmtilegra en að leika í kynlífssenum. ,,Þið eruð tveir fullorðnir einstaklingar og hafið gaman hvort að öðru og vitið að það þýðir ekkert"

Fyrr á árinu lék Jolie í sjóðheitu ástaratriði með góðum vini Brads Pitt, Matt Damon, þegar hún lék eiginkonu hans í ,,The Good Shepherd". Damon sagði á sínum tíma að það hefði verið einkennilegt að leika ástarsenu með kærustu besta vinar síns. Því er Jolie ekki sammála. ,,Mökum okkar var alveg sama, því þau þekkja okkur. Þeim hefði ekki getað fundist þetta minna ógnandi. Þú veist, ,,Gangi þér vel elskan, vona að þetta verði ekki of vandræðalegt."

Jolie var ekki í neinum vafa á því að ástarsenurnar væru gjörólíkar ástarsamböndum í daglegu lífi. ,,Munurinn á því að kyssa Matt og að kyssa Brad er einfaldur. Annar er vinur minn, og hinn elskhugi." sagði leikkonan.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.