Lífið

Nýjasta viðbótin í Spears fjölskylduna rangt feðruð?

sev skrifar
Jamie Lynn og Casey Aldridge
Jamie Lynn og Casey Aldridge
Enn flækjast málin hjá Jamie litlu Lynn. Bandarískt tímarit heldur því fram að Casey Aldridge sé alls ekki pabbi ófædds barns hennar, heldur yfirmaður við sjónvarpsþátt hennar, Zoey 101 á Nickelodeon stöðinni. Sá mun vera töluvert eldri en hinn nítján ára Casey.

Heimildarmaður Star tímaritsins segir að Casey sé borgað fyrir að gangast við barninu, þar sem faðirinn gæti átt yfir höfði sér fangelsisvist viðurkenndi hann að hafa sofið hjá hinni sextán ára Jamie.

Frá því Jamie tilkynnti um óléttuna hafa miklar vangaveltur verið um samband þeirra skötuhjúa. Leikkonan sagði í viðtali fyrir nokkrum vikum að hún væri einhleyp. Þá var hún að sögn slúðurpressunnar vestanhafs um tíma að eltast við yngri bróður Kevins Federlines, fyrrverandi eiginmanns stóru systur, Britney Spears.

Þá er Casey ekki sagður allur þar sem hann er séður. Að sögn heimildarmannsins hélt hann ítrekað framhjá Jamie Lynn, og neyddist síðastliðið vor til að viðurkenna það fyrir henni að hann hefði barnað aðra stelpu.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.