Lífið

Rebecca De Mornay tekin fyrir ölvunarakstur

sev skrifar
Rebecca De Mornay
Rebecca De Mornay MYND/Getty
Það er ekki bara unga fólkið í Hollywood sem er nappað fyrir ölvunarakstur þessa dagana. Rebecca De Mornay virðist að minnsta kosti á árunum sínum 48 ekki hafa lært að það borgar sig að láta bílinn vera hafi maður fengið sér neðan í því. Hún var í gær formlega ákærð fyrir ölvunarakstur.

Lögregla stöðvaði bíl leikkonunnar á Sunset Boulevard í lok nóvember. Þeir fundu mikla áfengislykt af henni, og létu hana undirgangast próf á staðnum til að meta hvort hún væri ölvuð. Ekki gekk henni vel í þeim, og þegar tekin var af henni blóðprufa reyndist hún áfengi í blóði hennar 0,09 prómill, sem er rétt yfir leyfilegum mörkum í Kaliforníu. Mál hennar verður tekið fyrir 31. desember.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.